150. löggjafarþing — 118. fundur,  16. júní 2020.

fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.

434. mál
[22:54]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Það er fróðlegt að heyra að svona einfalt atriði, eins og að gera grein fyrir fjöldanum, hafi þetta afdrifaríkar pólitískar og um leið samfélagslegar afleiðingar. En svo ég grípi boltann frá hv. þingmanni, af því að hann nefnir hvað gera mætti í framhaldinu af þessari leiðréttingu með því að malbika brautir og halda áfram með frekari uppbyggingu hvað þetta varðar, þá vil ég leyfa honum að klára þá röksemdafærslu og fara á dýptina í það hver næstu skref myndu verða.