kjarasamningar hjúkrunarfræðinga.
Herra forseti. Í samningnum, sem hjúkrunarfræðingum stóð til boða, var sumt gott, annað ekki, en heildarhækkunin sem þeim var boðið upp á var í árlegum skrefum 68.000 kr., sem er minna en við stjórnmálamenn fengum t.d. í einu skrefi. Og talandi um samhengi hlutanna: Jú, ég geri ráð fyrir því að ég sé jafn vel inni í samhengi hluta og hæstv. ráðherra. En ég hef líka tekið eftir því að hæstv. forsætisráðherra og jafnvel fjármálaráðherra hafa tekið undir og haldið hátíðlegar ræður um nýja mælikvarða í samfélaginu, um velsældarhagkerfi og á hverju það þurfi að byggjast. Væntanlega þarf það þá líka að byggjast á því að við förum að verðmeta þessar mikilvægu stöður og átta okkur á því að þær eru jafn kerfislega mikilvægar og jafnvel flugfélög.
Ég spyr hæstv. ráðherra að lokum: Kemur til greina að setja lög á hjúkrunarfræðinga náist ekki að semja?