samkeppnishæfni Íslands.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin þó að í þau hafi vantað ýmislegt eins og gengur þegar tíminn er stuttur. Það blasir auðvitað við að þjóðir heims eru núna í miklu kapphlaupi við að takast á við vandann sem hefur skapast vegna Covid-faraldursins og leggja mikið á sig til að bæta samkeppnisstöðu sína þannig að það er ekki eins og við séum í einhverju tómarúmi þar sem allt stendur kyrrt í kringum okkur og að það sé nóg að við lagfærum eitthvað smávegis og að þar með komumst við fram úr öðrum eða færumst upp stigann.
Mig langar að nota tækifærið hér í síðari spurningunni og spyrja hæstv. ráðherra hvaða aðgerða sé von sem er ætlað að auka fjölbreytni í atvinnulífinu og ekki síst til að efla alþjóðageirann og hugvitsdrifnar útflutningsgreinar sem stuðla að sjálfbærum og góðum hagvexti til langs tíma. (Forseti hringir.) Ég held að þetta sé eitt brýnasta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir og það er fróðlegt að fá að heyra innsýn hæstv. fjármálaráðherra varðandi þau efni.