150. löggjafarþing — 119. fundur,  18. júní 2020.

samkeppnishæfni Íslands.

[11:05]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Eitt af því sem nefnt er í þessari nýjustu úttekt er skortur á erlendri fjárfestingu. Ég ætla að fá að nefna tvennt sem ég tel að geti orðið til þess að auka hana. Í fyrsta lagi með því að vinna áfram að efnahagslegum stöðugleika í landinu sem okkur hefur gengið ágætlega að gera í þessu nýja regluverki opinberra fjármála, við höfum núna endurskrifað lögin um Seðlabankann og erum að sjá að tólin sem við höfum til þess að styðja við stöðugleika á Íslandi eru miklu betur smíðuð, miklu skilvirkari en nokkru sinni áður. Ef við náum að ýta undir aukinn efnahagslegan stöðugleika held ég að okkur takist betur að auka fjölbreytni í hagkerfinu, fá meiri flóru fyrirtækja og styrkja þar með útflutningsgreinarnar.

Hitt er bara allt það sem lýtur að nýsköpun og þessi ríkisstjórn hefur verið að gera nokkuð myndarlega; stórauka framlög í samkeppnissjóðina en líka gefa alls konar ívilnanir, skattafslætti, vegna rannsóknar og þróunar. Þetta held ég að muni sömuleiðis skila sér mjög vel.