heimilisofbeldi.
Frú forseti. Í fyrsta lagi er rétt að taka fram að friðhelgi heimilisins getur ekki verið og má aldrei verða skjól fyrir ofbeldi. Ofbeldi innan veggja heimilisins má ekki líða frekar en annað ofbeldi og það á að taka mjög föstum tökum. Það þarf ekki að hafa mörg orð um það hversu alvarlegt slíkt ofbeldi er og hve miklar og djúpstæðar afleiðingar það getur haft. Ég held að það sé sérstaklega mikilvægt fyrir okkur núna að horfa mjög stíft á þann málaflokk. Við horfum fram á tíma, og þeir eru svo sem byrjaðir, þar sem óvissa, atvinnuleysi og ótti fólks um framtíð sína mun aukast og mun því miður trúlega verða viðvarandi, a.m.k. næstu mánuði og jafnvel misseri. Það er þekkt og vitað að það hefur áhrif á það (Forseti hringir.) sem fer fram innan veggja heimilanna og við þurfum að vera á sérstöku (Forseti hringir.) varðbergi akkúrat núna.