150. löggjafarþing — 119. fundur,  18. júní 2020.

heimilisofbeldi.

883. mál
[11:48]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. fyrirspyrjanda. Fyrirspurnin er mikilvæg og eins og fleiri tók ég eftir þessari umfjöllun í fréttum í tengslum við Covid-faraldurinn. Tölfræðin sem ráðherra færir þingheimi hér er alvarleg, þetta eru sláandi tölur. Mig langaði að inna hæstv. dómsmálaráðherra eftir því í hvaða tveimur lögregluumdæmum ekki hefur orðið fjölgun, bara fyrir forvitnissakir. Maður hefur heyrt sögur af því að það finnist svæði þar sem ekkert heimilisofbeldi er tilkynnt. Vonandi er það út af því að þar sé raunverulega ekkert heimilisofbeldi en því miður sýnir tölfræðin annars staðar okkur að sú er varla raunin.

Mig langaði í lokin að nefna stuðning við þolendur utan höfuðborgarsvæðisins. Bjarmahlíð er dæmi um verkefni sem hefur heppnast gríðarlega vel en þar vantar enn athvarf fyrir konur (Forseti hringir.) sem búa við heimilisofbeldi. Það má gera miklu betur.