150. löggjafarþing — 119. fundur,  18. júní 2020.

heimilisofbeldi.

883. mál
[11:50]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Sigurður Páll Jónsson) (M):

Ég vil þakka kærlega fyrir þessa umræðu og mjög skilmerkileg svör hæstv. ráðherra. Ég finn fyrir því að mikill vilji er til að taka betur á þessum málum. Það kom greinilega fram í svari hennar að í apríl og maí voru flestar tilkynningar í þessu málum um langa hríð eða hreinlega frá upphafi. Það kom líka fram að unnið er að ríkari aðstoð við þolendur og gerendur.

Gerendur eru oft og tíðum veikir og þar kemur inn í áfengis- og vímuefnafíkn. Staðreyndin er sú að margt fólk sem er haldið þessum sjúkdómi er á biðlistum eftir áfengis- og fíknimeðferðum og ég hef öruggar heimildir fyrir því að flest vandamálin séu inni á heimilunum. Því hefur oft verið haldið fram að þeir sem eru á neðstu stigum sjúkdómsins séu heimilislausir. Það er mikið til í því. En mesti fjöldinn er bara venjulegt heimilisfólk. Það bíður heima hjá sér eftir því að fá úrræði og kemst ekki í meðferð vegna þess að biðlistarnir eru langir. Þetta er oft og tíðum fólk sem hefur farið í nokkrar meðferðir.

Ég vil því hvetja dómsmálaráðherra til að hjálpa heilbrigðisráðherra við að vinna að því að hreinsa biðlistana svo að fólk komist í það úrræði (Forseti hringir.) sem bíður þess á þeim vettvangi.