verkfallsréttur lögreglumanna.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni kærlega fyrir þessa fyrirspurn, sem er mjög mikilvæg. Mig langar að fara í smáhliðarleiðangur út frá þessari fyrirspurn og velta þeirri spurningu upp við hæstv. dómsmálaráðherra hvort til álita komi að þeir lögreglumenn sem þurft hafa að fara í sóttkví vegna starfa sinna, vegna þess að þeir umgengust smitaða einstaklinga, fái að halda vaktagreiðslum sínum í þessum mánuði.
Mig langar líka að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra um ástæður þess að meiri hlutinn hafnaði því að lögreglumenn ættu að fá álagsgreiðslur eins og framlínustétt í heilbrigðisgeiranum fékk vegna Covid, en það er óumdeilt að lögreglumenn eru framlínustétt. Og svo er auðvitað vert að nefna að um er að ræða 15 mánaða samningsleysi (Forseti hringir.) þessarar stéttar sem hefur ekki verkfallsrétt. Það er auðvitað hneisa. (Forseti hringir.) Það er hneisa fyrir stjórnvöld að standa svona illa að þessum málum.