verkfallsréttur lögreglumanna.
Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir þessa mikilvægu umræðu og það er sjálfsagt að ræða um verkfallsréttinn. Ég veit að þessi fyrirspurn og frumvörp hv. þingmanns eru ekki nýtilkomin, hv. þingmaður hefur velt þessu mikið fyrir sér og lagt þetta til og það er sjálfsagt að taka þá umræðu. Það breytir því þó ekki að við áttum okkur öll á því, og það kom bersýnilega í ljós í þessari umræðu, hvert mikilvægi starfanna er og að það gæti verið snúið í framkvæmd að lögreglumenn hefðu verkfallsrétt vegna þeirrar einstaklega þýðingarmiklu stöðu sem þeir hafa í samfélaginu. En það er sjálfsagt að ræða þetta. Fyrst og fremst tel ég mikilvægt að samið verði við lögreglumenn og að þeir fái sambærilega launahækkun og að launatryggingin sem var boðin og er boðin í staðinn fyrir verkfallsrétt sé tryggð.
Hv. þingmaður kom sjálfur inn á að það eina sem stæði út af væru álagsaukagreiðslur sem ætti eftir að ná saman um og því bind ég miklar vonir við að það sé það eina sem út af stendur. Það gefur okkur þá einhverja von um að hægt sé að ganga frá samningum fyrir þessa mikilvægu stétt og við erum öll sammála um hversu mikilvæg hún er. Eins og hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson kom inn á þá er virðing borin fyrir starfinu og við sjáum það í því trausti sem mælist á lögreglunni. Það er ekki sjálfgefið. Það er af því að lögreglumenn á Íslandi sinna starfi sínu af alúð og almennt af mikilli kostgæfni og hófsemd og það sýnir sig í því mikla trausti sem lögreglan nýtur í íslensku samfélagi. Ég er byrjuð að skoða það sem hv. þm. Helga Vala Helgadóttir kom inn á varðandi vaktagreiðslur í sóttkví og ég tek undir að þetta þarf að kanna. Það mæðir auðvitað mikið á lögreglumönnum að þurfa að fara í sóttkví svona lengi eftir að hafa verið í samskiptum við aðila sem eru smitaðir af Covid.