150. löggjafarþing — 119. fundur,  18. júní 2020.

aðgerðir til þess að verja heimilin.

786. mál
[13:31]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir ágæta umræðu hér í þingsal um þetta mikilvæga mál. Ég rakti í máli mínu að markaðsaðilar gera ekki ráð fyrir verðbólgu eða Seðlabankinn og hagspár kveða ekki á um miklar líkur á verðbólgu á næstu misserum, eða árum jafnvel. Það er einn mælikvarðinn. Það má segja að þetta sé veðurspá í verðbólgumálum og þá er ekkert skrýtið að spurt sé: Hvers vegna tökum við þá ekki verðtryggðu jafngreiðslulánin úr umferð?

Ég hef lagt frumvarp fyrir þingflokka stjórnarflokkanna, það er komið í gegnum ríkisstjórn, er enn inni í þingflokkum, sambærilegt frumvarpi sem kom fram haustið 2016 þar sem við þrengjum mjög að 40 ára lánunum en þó með skilyrðum. Þeir sem við erum sérstaklega að hugsa um þegar við sverfum að þessum Íslandslánum, löngu verðtryggðu jafngreiðslulánunum, eru þeir sem eiga jafnvel þann kost einan til að geta tekið lán, þ.e. standast ekki greiðslubyrði á öðrum tegundum lána.

Í þeim húsnæðisaðgerðum sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir og eru enn í smíðum — og eitt frumvarp er nýkomið inn í þingið um það efni — er komið með eins konar mótvægisaðgerðir til að mæta þessum hópi sérstaklega. Hvernig úr þessu spilast ræðst talsvert af samspili ólíkra aðgerða og það mun að lokum ráða úrslitum um það hversu langt við göngum í því að þrengja að Íslandslánunum. Ég er því miður búinn með tímann minn.