fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Mér fannst hann fara svolítið í kringum það sem ég var að spyrja um. Ég var að spyrja um hver eigi að borga þann aukakostnað sem fylgir því að flytja þessa starfsemi. Ef ríkið þarf að kaupa lóð fyrir þessa starfsemi, rannsóknastarfsemina, í öðru sveitarfélagi, geta það verið einhverjir milljarðar. Þá er framlag ríkisins til þessa verkefnis orðið enn meira. Þetta er það sem við höfum lagt áherslu á og ég hef lagt áherslu á í umfjöllun minni um þetta mál og sérstaklega borgarlínuna, að mér finnst að þarna séu svo óljósir þættir þegar kemur að kostnaði sem ríkið þarf að leggja út fyrir. Og maður spyr sig: Þarf ekki að ganga frá einhverju lokasamkomulagi þannig að tryggt sé að ríkissjóður sé ekki að taka á sig kostnað vegna einhverra frávika og ófyrirsjáanlegra þátta? Það finnst mér ekki liggja fyrir.
Hv. þingmaður nefndi það líka að taka framkvæmdaþætti út úr félaginu, þ.e. að samkomulagið hljóðar upp á að sveitarfélögin geti tekið ákveðna þætti út úr þessu á síðari stigum, þ.e. vegi og brýr o.s.frv. En þegar sá framkvæmdakostnaður er kannski meiri en sem nemur 25% eignarhlut sveitarfélaganna, eiga sveitarfélögin þá að kaupa það á markaðsverði eða ræðst það af hagkvæmni framkvæmdarinnar og slíku? Þar er líka óljós þáttur sem þyrfti að fá á hreint. Hv. þingmaður þekkir það og við þekkjum það vel, við sitjum saman í fjárlaganefnd, að nú þarf ráðdeildarsemi í fjármálum ríkisins. Halli ríkissjóðs er gríðarlegur. Það eru aðhaldsaðgerðir fram undan í næstu fjárlögum. Við vitum það. Það er ekki hægt að skrifa upp á svona samkomulag, hv. þingmaður hlýtur að vera sammála mér í því, þegar svona óljósir þættir geta skipt einhverjum milljörðum.