150. löggjafarþing — 120. fundur,  18. júní 2020.

fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.

434. mál
[15:50]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það er 33% dýrara að fela fjárfestum að sjá um vegaframkvæmdir en hinu opinbera. Það kemur fram, herra forseti, í umsögn FÍB, Félags íslenskra bifreiðaeigenda, um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir, og þar er útlistað mjög skýrt að einmitt vegna hærri vaxtakostnaðar einkaaðila en vaxtakostnaðar ríkisins og fleiri þátta er einfaldlega að meðaltali 33% dýrara að fara í einkafjárfestingu en hitt.

Ég er reyndar ekki sammála því sem hv. þingmaður sagði um að þau verkefni sem eru undir PPP séu ekki mikilvæg. (Gripið fram í.) Ég held að þau séu mjög mikilvæg en vissulega tekin út fyrir sviga. En er ekki staðreyndin að við þyrftum að setja mun meira fjármagn til vegaframkvæmda og í viðhald? Ég held að það sé nokkuð sem gleymist. Og finnst hv. þingmanni ásættanlegt (Forseti hringir.) að leggja veggjöld á vegi þar sem aðrar leiðir eru í raun ekki (Forseti hringir.) færar, eins og t.d. Siglufjarðargöng og Vestfjarðagöng?