150. löggjafarþing — 120. fundur,  18. júní 2020.

fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.

434. mál
[17:23]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég hjó ekki eftir því að þingmaðurinn væri beint með spurningu (BLG: Það var samanburður.) — já, hann var með samanburð. Þingmaðurinn minnist á Sundabraut, ytri leið og innri leið, og að sú leið sem Vegagerðin mæli með sé ódýrari. Ég leiði líkur að því að Vegagerðin sé þá ekki með það mikið fjármagn upplagt í þessa leið að hún geti farið þá leið sem hún myndi vilja fara. Það hlýtur að vera betri fjárfesting að fara í leið sem meira öryggi er í og felur í sér greiðari samgöngur þó að hún sé dýrari. Hvað kostar eitt slys? Hvað kosta umferðartafir og annað slíkt? Það var svolítið þemað í ræðu minni að það þarf að velja og fara í þær leiðir sem gagnast því að það er ekkert verið að tjalda til einnar nætur þegar verið er að fara í svona framkvæmdir.

Mig minnir að þegar Sundabraut var komin á framkvæmdaplan upp úr aldamótunum, 2003–2006, þá hafi ytri leiðin verið það sem átti að verða ofan á og ódýrari kosturinn hafi verið skoðaður seinna. En ég er ekki alveg með það á hreinu. En það er sorglegt að það þurfi að dragast svona og lenda í svona miklum flækjum.