fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Forseti. Síðast þegar við stóðum hér saman fyrir ekki svo löngu var ég rétt að byrja að ræða þann þátt samgönguáætlunar sem snýr að almenningssamgöngum. Ég lýsti stuttlega reynslu minni af almenningssamgöngum og ítrekaði mikilvægi þess að sveitarfélög viðhéldu almenningssamgöngum. Ég var hins vegar ekki alveg búinn með þá sögu því að ég hafði ekki komist að kjarna málsins. En kjarni málsins er þessi: Ég og ótal margir fleiri Íslendingar sem höfum upplifað það að búa í gömlum borgum erlendis höfum búið þar án þess að þurfa að eiga fjölskyldubíl. Við þessar aðstæður í borgum sem hafa byggst upp allt frá miðöldum er hægðarleikur að fara gangandi allra sinna erinda svo að segja, og þurfi maður að komast eitthvað lengra er hægt að fara með strætisvagni eða lest en lestirnar og borgarlínurnar og strætisvagnarnir, og hvaða nöfn sem menn vilja gefa almenningssamgöngum í borgunum, virka. Þær ganga upp vegna þess hvernig borgirnar eru byggðar upp. Svo koma inn í þættir eins og veðurfar o.fl. En aðalatriðið er að þessar borgir hafa byggst upp með þeim hætti frá tímum hestvagna og svo sporvagna að það er tiltölulega auðvelt að komast frá einum þéttbyggðum, fjölmennum stað á annan, allra sinna erinda.
Reykjavík hefur hins vegar byggst upp með allt öðrum hætti en miðaldaborgir Evrópu og á miklu meira sameiginlegt með þeim borgum sem byggðust í Ameríku. Þá þýðir ekkert, virðulegur forseti, að ætla bara að ímynda sér að Reykjavík sé Amsterdam og ráðast í samgönguverkefni út frá þeirri ímyndun. Ég hef talið að eitt það besta sem gæti hent varðandi skipulagsmál í Reykjavík, sérstaklega í samgöngumálum, væri að tekið yrði fyrir ferðir borgar- og bæjarfulltrúa, skoðunarferðir, til erlendra borga. Ég held að slíkar ferðir, eins margar og þær hafa nú verið, hafi valdið heilmiklu tjóni. Menn fara þarna saman, ýmist borgarfulltrúar í Reykjavík eða fulltrúar sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, úr Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, og skoða framkvæmdir og samgöngur í Amsterdam eða Antwerpen eða Berlín eða Stokkhólmi, guð má vita hvar. Þetta hafa verið margar ferðir. Og svo eflaust glærukynningar þar sem farið er yfir það með þessum borgar- og bæjarfulltrúum hversu mikilvæg þessi samgöngukerfi séu í þeim borgum sem menn eru í hverju sinni. En þessar borgir eru gjörólíkar að eðli, gjörólíkar Reykjavík. Hér þurfum við lausnir sem taka mið af þeim aðstæðum sem hér eru. Þær lausnir eiga að sjálfsögðu að innihalda almenningssamgöngur en mega ekki vera til þess fallnar að leggja gríðarlegar byrðar á íbúana til þess eins að gera ástandið verra. Hér kem ég að því sem er kannski kjarni málsins í umræðunni um almenningssamgöngur og það sem lagt er upp með í þessari samgönguáætlun: Það sem hér er lagt til mun gera ástandið verra. Hvað á ég við með því? Jú, það þarf ekki einu sinni að taka mín orð fyrir því að þeir hafa margir verið ófeimnir við það, talsmenn borgarlínunnar, að útskýra að einn af kostum þessarar aðferðar sé sá að hún þrengi að umferðinni sem fyrir er, umferð fjölskyldubílanna, langalmennasta samgöngumátans hér á höfuðborgarsvæðinu og á Íslandi yfir höfuð. Það er beinlínis tiltekið sem kostur, eins furðulegt og það nú er, við þessa aðferð að með henni verði þrengt að einkabílnum og fjölskyldubílnum og með því neyðist fólk til að nýta sér almenningssamgöngurnar.
Herra forseti. Það er mjög erfitt við þetta að eiga þegar tíminn klárast (Forseti hringir.) á fimm mínútna fresti og ég er rétt að komast af stað í almenningssamgangnakaflanum. Ég bið hæstv. forseta að skrá mig aftur á mælendaskrá.