fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Forseti. Þetta var afskaplega sérkennilegt, en þó get ég tekið undir með hv. þingmanni um hvatningu hans til fólks að hlusta á fyrri ræður mínar um samgönguáætlun og ekki hvað síst þar sem fjallað var um skosku leiðina. Ég talaði reyndar ekki bara um eyjar, ég talaði líka um Sutherland, Suðurland, sem er nyrsti hluti Skotlands og Katanes sem er tangi þar út af. En allt á það sínar skýringar eins og menn munu heyra þegar þeir hlusta vonandi á þær ræður og verða við hvatningu hv. þingmanns.
Það er hins vegar margt órætt í þessu máli enn. Hv. þingmaður kvartar undan því að ég sé ekki búinn að ræða hafnir og vegi í Norðausturkjördæmi. Ég hef reyndar — ef hann hefði fylgst betur með ræðum mínum hefði hann heyrt það — tekið það fram að það sé allt á dagskrá. Það er allt væntanlegt síðar í dag eða næstu daga. Ég reyni að fara tiltölulega skipulega í gegnum þetta, byrjaði á innanlandsfluginu, fór svo í almenningssamgöngukaflann en vegir, hafnir og göng eru öll eftir, svoleiðis að hv. þingmaður getur fylgst spenntur með framhaldinu.
Fullyrðingar hv. þingmanns um málþóf eru óneitanlega sérkennilegar, komandi frá þingmanni Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, þess flokks sem á sér arfleifð áratugi aftur í tímann sem byggist á málþófi, ekki málefnalegri umræðu heldur einmitt málþófi, því að tala hér út í eitt um ekki neitt, en koma svo þegar menn eru að ræða samgönguáætlun með svona yfirlæti og hneykslast á því að of miklum tíma sé eytt í að ræða það mál. Ég minni á að samgönguáætlun er í gildi til þriggja ára. Alþingi ber vissulega að samþykkja samgönguáætlun en samgönguáætlun er í gildi til þriggja ára. Sú áætlun sem við ræðum hér er til bóta að ýmsu leyti en það eru líka (Forseti hringir.) miklir gallar á henni og þess vegna er eðlilegt að ræða hana.