150. löggjafarþing — 121. fundur,  20. júní 2020.

fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.

434. mál
[11:52]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir ræðuna. Þetta var nú svo sem ekki mikið andsvar. Hv. þingmaður lagði mér reyndar orð í munn um að það væri svo sem allt í lagi að samgönguáætlun frestaðist. Það sagði ég ekki. (ATG: Nei …) Ég sagði hins vegar það … (Gripið fram í.) ég sagði hins vegar — hv. þingmaður, hlustaðu nú, ég sagði hins vegar að önnur samgönguáætlun væri í gildi en það væru hins vegar breytingarnar núna sem skiptu væntanlega máli, þannig að það er ekki rétt sem þingmaðurinn var að gefa í skyn, að það væri það sem við gerðum okkur ekki grein fyrir.

Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að þinghlé er skammt fram undan, búið er að semja um það, við vitum hvernig það er. Þess vegna þurfum við að vanda okkur mjög vel. Það sem skiptir líka miklu máli er akkúrat það sem ég var t.d. að benda á og fékk vitanlega ekki svör við hjá hv. þingmanni — og kannski kemur það í framsögu hans í þessu svokallaða samvinnumáli — það virðist vera að meiri hlutinn sé búinn að átta sig á að það er ekki skýrt hvernig á að skipta kostnaðinum í samvinnuverkefnunum eða sáttmálanum milli ríkis og sveitarfélaga. Er það ekki ábyrgðarhluti að ætla að fara að samþykkja mál í þinginu ef það liggur ekki fyrir? Er það ekki ábyrgðarhluti? Eða finnst hv. þingmanni það ekki skipta neinu máli að þeir hlutir séu á hreinu áður en farið er í þá vegferð?

Svo er annað sem kemur kannski fram líka í ræðum undir þessu samvinnuverkefni sem er á dagskránni líka. Það er hver endanlegur kostnaður borgarlínu er, hvernig kostnaðarskiptingin er, hverjir munu bera uppi hagnaðinn eða tapið sem verður á framkvæmdinni og ef hún fer fram úr áætlun hverjir munu kosta það og bera það. Þess vegna hljótum við að spyrja hv. þingmann, þó að það sé kannski ekki mitt að spyrja, hann er í andsvörum við mig, en hv. þingmaður hlýtur að geta svarað því hvernig verður farið með þann kostnað ef borgarlína eða eitthvað af þessum verkefnum fer fram úr áætlun. (Forseti hringir.) Hvernig verður honum skipt?