150. löggjafarþing — 121. fundur,  20. júní 2020.

fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.

434. mál
[13:41]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Hilmar Þór Björnsson arkitekt heldur úti aldeilis prýðilegum vef sem hann kallar Arkitektúr, skipulag og staðarprýði. Núna í byrjun júní, 2. júní sl., birti hann grein á síðunni sem heitir Borgarlínan í opinberri kynningu. Hann segir í upphafi þessarar greinar, með leyfi forseta:

„Um þessar mundir eru liðin 15 ár síðan Pétur H. Ármannsson arkitekt setti fram tillögu sína um Borgarlínu í Reykjavík. Þetta var mjög vel rökstudd hugmynd sem var í fullkomnu samræmi við þarfir Reykjavíkur og eðlilega þróun hennar í meira en 80 ár. Hugmyndin var þannig vaxin að ekki var hægt að líta fram hjá henni. Þegar aðalskipulag Reykjavíkur var endurskoðað og AR2010–2030 var gefið út var hugmynd Péturs eðlilega þar inni og fékk staðfestingu. Síðan eru bráðum liðin 10–15 ár.“

Það er náttúrlega ekki hægt að sýna það héðan úr ræðustólnum en mynd sem fylgir þessari grein sýnir að borgarlína Péturs H. Ármannssonar er í meginatriðum þannig að hún liggur frá Reykjavíkurhöfn og upp að Keldum. Hún liggur utan í Laugardalnum og áfram upp í átt að Grafarvogi og að Keldum. Hilmar Þór segir, með leyfi forseta:

„Þarna var dregin upp hugmynd sem stefndi að því að gera Reykjavík að sterkri, þéttri og starfrænni línulegri borg. Aldeilis eitthvað sem beðið hafði verið eftir. Þessu var fagnað, enda dæmigerð“ — það sem kallað er á ensku og ég hef ekki eftir, vinna–vinna hugmynd.

Hann segist hafa fagnað þessu verulega og sérstaklega stutt þetta mál og skrifað greinar um það auk þess að minnast á borgarlínu þegar deiliskipulagsbreytingar voru gerðar í grennd við þessa línu. Hilmar Þór segir, með leyfi forseta:

„Ég taldi víst að þessi Borgarlína Péturs yrði komin í fullan rekstur frá Lækjartorgi inn í Skeifu innan þriggja til fjögurra ára og yrði fullbyggð fyrir 2020. Þetta var einfalt, nauðsynlegt og hagkvæmt fyrir utan að vera algerlega óumdeilt.

Það voru engin ljón í veginum, en þrátt fyrir það gekk þetta ekki eftir, þó ótrúlegt sé.

Skipulagsyfirvöld í Reykjavík fylgdu málinu ekki nægjanlega vel eftir. Í staðinn blés þessi einfalda rökrétta hugmynd út og varð ógnarstór. Hún tífaldaðist í umfangi og varð svo stór að sveitarfélögin réðu ekki við hana og þurftu að kalla ríkið til. Hafnartorg var byggt án þess að í deiliskipulagi yrði gert ráð fyrir Borgarlínunni. Hverfisgatan var endurbyggð án þess að gert væri ráð fyrir Borgarlínunni o.s.frv. Ég óttaðist að ekkert yrði úr þessu og það olli miklum vonbrigðum.

Ég veit ekki hvað gerðist en það var eins og hreppapólitík hlypi í málið. Ósjálfbær sveitarfélög á jaðri höfuðborgarsvæðisins vildu vera með og menn sáu tækifæri til þess að leiðrétta skipulagsmistök með því að teygja Borgarlínuna úr 6–8 kílómetrum upp í tæplega 60, eða næstum tífalt. Ósjálfbærum jaðarsveitarfélögum á nú að bjarga með línunni í stað þess að ráðast að rótum vandans og jafna umferðarálagið á samgöngukerfinu með þekktum skipulagslegum úrræðum.

Þau herfilegu skipulagsmistök að staðsetja Háskólann í Reykjavík úti í mýri án nokkurra tengsla við borgarvefinn á nú að lagfæra með Borgarlínunni. Og til þess að það sé hægt að selja þessa hugmynd er hún látin halda áfram yfir Fossvog og þá leiðina um venjulegar húsagötur í Kópavogi að Hamraborg. Og svo til þess að styrkja „farþegagrunninn“ á þessari línu var hafin mikil uppbygging í Kársnesinu og enn frekari uppbygging er fyrirhuguð í gamla miðbæ Kópavogs. Maður spyr sig: Af hverju eru ekki boruð göng undir Öskjuhlíð og línan tengd gamla Hafnarfjarðarvegi til þess að hún væri í sögulegum tengslum við uppbygginguna til suðurs? Eða ganga áfram austur Miklubraut og svo suður Kringlumýrarbraut, fram hjá Kringlunni, Borgarspítalanum, fram hjá miðbæ Kópavogs og Garðabæjar suður í Hafnarfjörð?“

Hann heldur áfram í greininni, þessi ágæti maður, Hilmar Þór Björnsson. Ég sé, forseti, að ég get ekki komist lengra í þessum lestri en hyggst halda honum áfram í næstu ræðu minni vegna þess að þessi grein á sannarlega erindi inn í umræðuna og hefði betur komið fram fyrr. Ég bið hæstv. forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá vegna þess að mér entist ekki tíminn.