150. löggjafarþing — 121. fundur,  20. júní 2020.

fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.

434. mál
[17:51]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Hæstv. forseti. Í ræðu hv. þm. Sigríðar Á. Andersen kemur margt áhugavert fram í gagnrýni á samgöngumálin á höfuðborgarsvæðinu. Meðal annars segir á einum stað í hennar ágætu ræðu að í Reykjavík sé einkum gert ráð fyrir hinni svokölluðu borgarlínu, eins og þingmaðurinn orðaði það, sem er algjörlega óútfært fyrirbæri, segir hún jafnframt. Borgarlína er algjörlega óútfært fyrirbæri og það hefur vitanlega komið fram í þeim gögnum sem við höfum séð. Nú er einhver sýning í gangi í Ráðhúsinu, held ég, þar sem verið er að sýna eina útgáfu af henni. Að minnsta kosti hefur verið erfitt að fá á hreint hvað það er nákvæmlega. Eitt af því sem menn tala um varðandi almenningssamgöngur er að þær séu góðar fyrir loftslagið og eflaust er það gott ef það minnkar einhverja umferð á móti en ég man ekki eftir að hafa séð neinar rannsóknir sem sýna fram á að samdráttur verði í notkun einkabílsins á næstunni. Þá á að fara að taka upp þessa strætisvagna sem ganga væntanlega fyrir dísilolíu eða einhverju slíku.

Það sem ruglar mig enn meira í þessu öllu saman, hæstv. forseti, er að nú kemur formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, sem er einn helsti hvatamaður að þessari borgarlínu — eða hvatamennirnir að henni eru borgarfulltrúar meiri hlutans í Reykjavíkurborg — og fer að tala um að lestarsamgöngur séu svo mikilvægar að við eigum að horfa á þær út frá loftslagssjónarmiðum, svo dæmi sé tekið, og nefnir reyndar líka kórónuveirufaraldurinn og lífsgæði komandi kynslóða.

Hér talaði formaður skipulags- og samgönguráðs um að Evrópusambandið ætli að setja tvær trilljónir evra til að koma upp hraðlestakerfum um álfuna eins og stendur hérna. Ég velti því fyrir mér, hæstv. forseti, hvort þetta sé hluti af borgarlínunni sem formaður nefndarinnar er að skrifa um í færslu á facebook. Er hugmyndin í rauninni að tengja saman lestir og strætisvagna? Eða hver er í raun útfærslan á borgarlínu? Í það minnsta segir formaður þessa ráðs hjá borginni að skoða eigi kosti og galla við lestarsamgöngur fyrir fólk og vörur. Ég velti því fyrir mér hvort það sé þá ekki rétt að verða við óskum þessa ágæta borgarfulltrúa, eða formanns skipulags- og samgönguráðs, og stoppa allt sem viðkemur borgarlínu og setja það til hliðar og skoða mjög vandlega kosti við lestarsamgöngur. Ef þær geta komið í stað borgarlínu eða tvinnast saman með henni þá hlýtur að þurfa að rannsaka það ofan í kjölinn í ljósi þess sem hér er sagt í rauninni.

Ég vil velta upp, hæstv. forseti, hvort ekki sé rétt að taka þau mál er snúa að borgarlínu út og geyma þau öllsömul og taka fram í ræðum um samgönguáætlun að það sem snýr að borgarlínu sé sett á ís vegna þess að skoða þurfi betur hvað talsmenn borgarlínuverkefnisins í höfuðborginni vilja, hvort það eru lestarsamgöngur eða eitthvað annað. Í það minnsta er þetta svolítið ruglingslegt og því er hægt að taka undir með hv. þm. Sigríði Á. Andersen að þetta er algjörlega óútfært fyrirbæri og ekki ljóst hvað borgarlína á að gera.

Þessi hringlandaháttur með samgöngur og líka almenningssamgöngur er að sjálfsögðu stórvarasamur því að á sama tíma er ekki hægt að auka tiltrú fólks á almenningssamgöngum. Nær væri, hæstv. forseti, að hætta að velta upp alltaf einhverjum nýjum útópískum pælingum eins og járnbrautarlestum eða léttlestum eða hvað það heitir allt saman og einbeita sér að því að gera það kerfi sem við höfum í dag betra, fjölga strætóferðum, auka tíðnina. Það má örugglega skoða það einhvers staðar, án þess að ég hafi mikla þekkingu á því, hæstv. forseti, að auka forgang strætós með einhverjum hætti. Þá um leið þarf vissulega að fara í samgöngubætur, sem veitir ekki af, og skoða þetta allt saman í rólegheitum því það gengur ekki að vera alltaf með nýjar áherslur eða sveiflast fram og til baka eins og virðist vera hjá höfuðborginni, fara frá lest í lest og allt þetta.