150. löggjafarþing — 121. fundur,  20. júní 2020.

fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.

434. mál
[19:03]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður spyr hvernig hann og félagar hans séu í tafaleik. Það er ljúft og skylt að upplýsa hv. þingmann um það, hafi hann ekki áttað sig á því sjálfur. Það að halda 23–24 ræður í síðari umr. samgönguáætlunar er tafaleikur. Alveg sama hversu sárt þingmönnum Miðflokksins, sem hingað til hafa reynt að sýna sig sem mikla framkvæmdamenn, þykir það þá eru þeir með þessu að tefja að hægt sé að koma þessum framkvæmdum í gagnið. Og af hverju, spyr hv. þingmaður kannski? Jú, við erum með starfsáætlun. Formenn allra flokka, þar með talinn hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hafa samþykkt að ljúka störfum þingsins samkvæmt henni á fimmtudag. Allir aðrir formenn flokka virða það samkomulag en hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur sýnt áður að það skiptir hann engu máli þó að hann riti undir svona hluti. Hefur hv. þingmaður ekki tekið eftir því að það er enginn annar í umræðunni en Miðflokkurinn nema ég hef komið einstaka sinnum í andsvör? Hefur hv. þingmaður talið að allir flokkar séu með í þessu eða hefur hann ekki séð að það er Miðflokkurinn sem er í þessu og er með því að tefja málið, tefja það að hægt sé að ljúka umræðu um málið, komast að næsta máli, sem er líka samgöngumál, og svo næsta máli þar á eftir, sem er samgöngumál, og svo áfram niður listann með öll þau mál sem menn eru búnir að sjá fyrir sér að ljúki á þessu þingi og samkomulag var um þegar kom að starfsáætlun? Þetta, hv. þingmaður, er tafaleikur og mér finnst gott að ég gat notað síðustu stundirnar á þessum góða degi til að útskýra það fyrir hv. þingmanni því að hann virðist ekki hafa áttað sig á því. (Gripið fram í.)