150. löggjafarþing — 122. fundur, 22. júní 2020.
tilkynning.
Forseti vill tilkynna um þá breytingu á starfsáætlun að forsætisnefnd ákvað á fundi sínum fyrr í dag að taka starfsáætlun Alþingis úr sambandi. Þessi ákvörðun mun þó ekki hafa áhrif á að eldhúsdagur fer fram annað kvöld, þ.e. almennar stjórnmálaumræður. Hefst þingfundur klukkan 19:30 annað kvöld og verða umræðurnar með hefðbundnu sniði.
Að öðru leyti verða nefndafundir og þingfundir þingflokksfundir boðaðir á þeim tímum sem hentar vegna þinghaldsins eins og nú er komið.