150. löggjafarþing — 122. fundur,  22. júní 2020.

erfðaréttur í sjávarútvegsauðlindinni.

[11:04]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Fyrir nokkrum vikum stóð hv. formaður atvinnuveganefndar og flokksfélagi hæstv. forsætisráðherra hér í pontu og hélt ræðu um erfðaframsal vegna hlutabréfa í fyrirtækinu Samherja. Formaður atvinnuveganefndar og þingmaður Vinstri grænna sagði þetta endurspegla stórgallað kvótakerfi með óheftu framsali og samþjöppun til stórra fjármagnsaðila. Formaðurinn minntist einnig á að koma yrði í veg fyrir að gríðarlegir fjármunir af sameiginlegum auðlindum okkar, sem byggjast á sameign þjóðarinnar, rynnu á milli kynslóða. Hún taldi að með erfðum á hlutabréfum í sjávarútvegsfyrirtæki fylgdi veiðiréttur ævilangt. Við formaður atvinnuveganefndar erum sjaldan sammála, en ég viðurkenni að ég er sammála því sem fram kom hjá hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, að við gætum stýrt auðlind okkar betur og með skynsamlegri, gegnsærri og skilvirkari hætti. Ég er ekki að tala um neina kollvörpun.

Ég vil draga það fram að við í Viðreisn höfum þrisvar á þessu þingi lagt fram breytingarfrumvörp sem undirstrika eign þjóðarinnar yfir sjávarauðlindinni og þrisvar sinnum hafa þingmenn ríkisstjórnarflokkanna fellt tillögur okkar. Þeir hafa fellt tillögur okkar í Viðreisn um tímabundna samninga. Það má sem sagt engu breyta. Að mínu viti fer ekki saman hljóð og mynd af hálfu meirihlutaflokkanna hér í þingsal.

Þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra, og það skiptir gríðarlega miklu máli að fá það fram: Er hún sammála formanni atvinnuveganefndar þingsins og þingmanni Vinstri grænna um að með erfðum á hlutabréfum í sjávarútvegsfyrirtæki fylgi veiðiréttur um aldur og ævi? Telur hæstv. forsætisráðherra svo vera? Því að hægt var að lesa það mjög skýrt að formaður atvinnuveganefndar taldi ógnunina vera þá að veiðiréttur fylgdi erfðum í hlutabréfum um aldur og ævi.