erfðaréttur í sjávarútvegsauðlindinni.
Herra forseti: Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur þessa fyrirspurn sem mér finnst í raun og veru snúast um þrennt. Við getum byrjað á þeim þætti sem snýst um fiskveiðistjórnarkerfið, sem hv. þingmaður gerði hér að umtalsefni. Það kemur mjög skýrt fram í lögum um stjórn fiskveiða að sjávarauðlindin er sameign þjóðarinnar. Af því má draga þá ályktun, eins og gert hefur verið, að afnotaréttur á þeirri auðlind verði ekki afhentur með varanlegum hætti. Þannig skil ég lögin og þannig hefur túlkun á þeim lögum verið. Ég vil minna hv. þingmann á að hér steytti að vísu á skeri frumvarp um breytingar á þessu sama fiskveiðistjórnarkerfi sem hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon, sem þá var hæstv. atvinnuvegaráðherra, lagði fram. Þá kom skýrt fram að túlkun okkar á þessu ákvæði er sú að þessi afnotaréttur verði ekki afhentur með varanlegum hætti.
Í öðru lagi snýst þetta um auðlindaákvæði í stjórnarskrá, sem við hv. þingmaður höfum verið að ræða allt þetta kjörtímabil á vettvangi formanna flokkanna. Ég tel það mjög mikilvægt fyrir framtíðarumræðu um auðlindir, ekki bara fiskveiðiauðlindina heldur allar auðlindir, að undirstrikað verði í stjórnarskrá að afnotaréttur af sameiginlegum auðlindum, hvort sem um er að ræða fiskinn í sjónum, orkuauðlindir, vatnið eða hvað það er, verði ekki afhentur með varanlegum hætti. Hvaða útfærsla á að vera á því finnst mér hins vegar heyra undir löggjafann hverju sinni, hvort það er gert með tímabundnum samningum, eins og hv. þingmaður hefur áhuga á, eða að það sé skýrt að það séu uppsegjanleg réttindi.
Í þriðja lagi snýst þetta um hvernig við viljum sjá erfðaskattkerfið þróast. Það er kannski þriðji þátturinn sem minnst hefur verið ræddur í þessu samhengi.