erfðaréttur í sjávarútvegsauðlindinni.
Virðulegi forseti. Já, þetta er loðið svar. Það var ekki hægt að fá það fram hjá hæstv. forsætisráðherra hvað hún telji veiðiréttinn vera langan. Telur hún hann vera varanlegan? Hún segir að svo sé ekki. Þá vil ég fá að vita hversu varanlegur eða hversu langur á hann eigi þá að vera. Hvað á hann að gilda í mörg ár? Hvað þarf til að mynda langan fyrirvara í uppsögn svo ekki komi til skaðabóta af hálfu ríkisins? Þetta skiptir gríðarlega miklu máli af því að við erum sammála um það, ég og hæstv. forsætisráðherra, að það þarf auðlindaákvæði. En það þarf að vera auðlindaákvæði með biti í, auðlindaákvæði sem er skýrt. Og á meðan stjórnarmeirihlutinn hefur í þrígang hafnað og fellt — stráfellt tillögur okkar í stjórnarandstöðunni, Viðreisn og fleiri flokka, um að tímabinda samninga, þá óttast ég það auðlindaákvæði sem verið er að vinna með af hálfu stjórnarflokkanna. Það verður að fá þetta fram, því að hvaða tilgang hefur það að setja þjóðareign í stjórnarskrá ef þetta er ekki vitað nákvæmlega? Við verðum að vita þetta. Við verðum að vita afstöðu stjórnarflokkanna til að það sé alveg skýrt að með auðlindaákvæði séum við að tryggja eign þjóðarinnar, þjóðareign á fiskveiðiauðlindinni, ekki eitthvert hálfkák.