erfðaréttur í sjávarútvegsauðlindinni.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir. Þó að svar forsætisráðherra sé ekki það sem hv. þingmaður vill fá er það ekkert loðið, þó að hv. þingmaður kjósi að kalla það svo. Það er algerlega skýrt af minni hálfu og hefur komið fram ítrekað í þessum sal að þessi afnotaréttur verður ekki afhentur varanlega. (Gripið fram í.) Þó að hlutabréf geti erfst er ekki þar með sagt að afnotarétturinn sé afhentur varanlega. Það er í höndum löggjafans hvernig því er háttað.
Af hverju vil ég fá auðlindaákvæði í stjórnarskrá? Jú, ég tel að það festi í sessi þá hugsun sem ég tel að meiri hluti þingmanna í þessum sal sé sammála um, að það er mikilvægt að hluti af grunngildum samfélags okkar birtist með þessum hætti í stjórnarskrá. Þar getum við haft ólíkar pólitískar skoðanir um tímalengd, hvort rétt sé að fara í það verkefni í gegnum samninga, úthlutun nýtingarleyfa. Það kann að vera mismunandi milli auðlinda. En stóra grundvallaratriðið sem á erindi í stjórnarskrá er að árétta þann vilja þjóðarinnar og þingsins að þessar auðlindir séu í þjóðareign (Forseti hringir.) og að þær verði ekki afhentar varanlega.