150. löggjafarþing — 122. fundur,  22. júní 2020.

biðlistar og stefna ríkisstjórnarinnar.

[11:11]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Lífskjarasamningarnir eru í uppnámi vegna þess að tveir verkalýðsleiðtogar hafa lýst yfir því að samningarnir standist ekki út af verðtryggðum lánum. Hæstv. fjármálaráðherra fullyrðir að verkalýðshreyfingin sé sammála því að gera ekkert í þeim málum. Biðlistar lengjast eftir aðgerðum, sjúklingar á biðlista eftir bæklunaraðgerðum geta ekki lengur skriðið til Svíþjóðar og eða leitað til stofnana innan lands eftir lífsnauðsynlegum aðgerðum.

Öryrkjar, þeir verst settu, og eldri borgarar bíða enn eftir réttlæti. Hvað eiga þeir að bíða lengi? Ásókn í heilbrigðiskerfið á eftir að stóraukast, í sjúkraþjálfun, líkamsrækt og sundlaugar, eftir Covid-lokanir. Börn bíða eftir meðferð á BUGL, barna- og unglingageðdeild. Hópur barna fellur utan kerfis og verður að framtíðaröryrkjum. Þetta er búið að vera svona allan tíma þessarar ríkisstjórnar og versnar enn. Fyrir síðustu kosningar barðist ég sérstaklega fyrir því að biðlistar á BUGL heyrðu sögunni til. Barn fær fimm klukkustundir í allt sumar eftir að öll meðferð þess fór forgörðum vegna Covid-19, fimm klukkustundir.

Þetta er Covid-mál. Undir það heyra líka biðlistar vegna þess að það er búið að valda fólki tjóni með því að taka af því sjúkraþjálfun og ýmislegt annað sem það þarf til að geta lifað eðlilegu lífi. Geðrænir sjúkdómar eru lamandi, hamlandi og valda þjáningum og eru einnig lífshættulegir. Og börn. Getum við ekki séð til þess að börn, fárveik börn, sem einhverra hluta vegna veikjast ekki rétt, fái þjónustu? Eða þarf að gefa út það að ákveðnir sjúkdómar og ákveðin veikindi veiti fólki ekki rétt á þjónustu?