kjarasamningar lögreglumanna.
Virðulegur forseti. Bókun 7 er einmitt það sem ég vitnaði til áðan, það sem stendur út af. Ég bind miklar vonir við að hægt verði að ná saman um það atriði sem allt of lengi hefur staðið út af og varðar m.a. álag vegna vopnaburðar og fleira. Varðandi það hvort við teljum okkur tilbúin að mæta því að lögreglumenn fái sömu laun og þeir hafa haft, þegar þeir fara í sóttkví eða einangrun, þá er búið að mæta því. Þeir lögreglumenn sem fara í sóttkví eða einangrun vegna starfa sinna fá full laun með vaktagreiðslum í samræmi við þau laun sem þeir hafa haft undanfarna mánuði. Ég tel algjörlega að það komi til skoðunar, þegar lögreglumenn eru jafn mikið í framlínunni og þeir eru, hvort hægt sé að koma meira til móts við þá.