150. löggjafarþing — 122. fundur,  22. júní 2020.

ríkisstjórnarsamstarfið.

[11:30]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Enn og aftur getur ríkið ekki samið við hjúkrunarfræðinga, aftur á að fara í gerðardóm. Fyrirsjáanlegt. Engir samningar við lögreglumenn, ekki svo mikið sem í augsýn. Fyrirsjáanlegt. Þingmenn fá launahækkun. Fyrirsjáanlegt. Ný stjórnarskrá pikkföst í skúffu. Fyrirsjáanlegt. Pólitísk afskipti af ráðningum. Fyrirsjáanlegt.

Virðulegi forseti. „Þegar þú ert vandamálið“, er leiðari í nýjasta blaði Stundarinnar. Þar er farið yfir ýmis spillingarmál undanfarinna ára. Á þeim lista er m.a. Samherjamálið, borgarfulltrúinn og peningaþvættið, Klaustursmálið og sendiherrakapalinn, Landsréttarmálið, Glitnisskjölin og hagsmunaáreksturinn, lögbannsmálið, akstursgreiðslurnar og dagpeningarnir, Panama-skjölin og ráðherrar í skattaskjólum, Orka Energy og samningar í Kína, hæfnisnefndin og Baldur Guðlaugsson, Landsbankinn og Borgun, lekamálið. Þetta er ekki tæmandi upptalning á spillingarmálum undanfarinna ára. Ef eitthvað var fyrirsjáanlegt við ríkisstjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn þá voru það spillingarmál, alveg eins og það er fyrirsjáanlegt að samningsvilji við starfsstéttir hins opinbera er lítill sem enginn.

Mig langar þess vegna að spyrja forsætisráðherra um ríkisstjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum. Hvernig er hægt að búast við öðru en því sem var fyrirsjáanlegt? Þegar spilling raungerist svo, af hverju gerist það sama og alltaf? Eins og fleygt er: Af hverju er alltaf verið að gera það sama aftur og búast við annarri útkomu? Af hverju er svona eftirsóknarvert að fara í valdasamstarf með Sjálfstæðisflokknum?