ríkisstjórnarsamstarfið.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir fyrirspurnirnar þar sem hann fór mjög víða. Hann sagði: Hér nást engir kjarasamningar. Fyrirsjáanlegt. Ég verð að byrja á því að leiðrétta hv. þingmann því að samið hefur verið við u.þ.b. 80% ríkisstarfsmanna. Það er búið að ná fram mjög mikilvægum breytingum sem m.a. var skrifað undir í gærkvöldi af hálfu hjúkrunarfræðinga sem snúast um að gerbreyta vaktavinnufyrirkomulagi ríkisins sem varðar einmitt þær kvennastéttir sem þar starfa. Þetta er stærsta breytingin sem hefur orðið á kjörum þessara hópa í áratugi. Var það fyrirsjáanlegt? Örugglega ekki, að mati hv. þingmanns. Er það gott? Já, það er frábært. Það mun breyta kjörum þeirra sem starfa á vöktum hjá hinu opinbera og það er gott. Það er gott fyrir kvennastéttir.
Launahækkun þingmanna. Já, rifjum það upp. Bíddu, það var þessi ríkisstjórn sem lagði niður kjararáð. Það var nú eitt af því sem flokkur hv. þingmanns var einhvern tímann á að þyrfti að gerast, það væri mikilvægt að koma á nýju og gagnsæju kerfi um launamál æðstu stjórnenda hjá ríkinu. En nú er komin einhver önnur plata á fóninn, hún er kannski ekki alveg fyrirsjáanleg þegar ég hugsa um fyrri málflutning flokks hv. þingmanns. Það sem við gerðum var að breyta þessu fyrirkomulagi og koma einmitt á gagnsæju fyrirkomulagi í anda þess sem gerist annars staðar á Norðurlöndum til þess að tryggja að umdeildir úrskurðir kjararáðs endurtaki sig ekki. Að vísu höfum við frestað þeirri hækkun sem átti að vera 1. júlí. Var það fyrirsjáanlegt? Ég veit það ekki. Ég veit ekki hvað hv. þingmanni finnst fyrirsjáanlegt. Var það fyrirsjáanlegt að við værum í þessu ríkisstjórnarsamstarfi? Nei, það held ég ekki, þótt hv. þingmaður segi að hér endurtaki sig allt. Þetta er í fyrsta skipti sem ég er í ríkisstjórn með þessum flokkum. Ég horfi bara á þann árangur sem næst í ríkisstjórnarsamstarfi. Ég tel okkur hafa náð árangri. Ég hef nefnt tvö dæmi hér og ég er nokkuð viss um að hv. þingmaður sá hvorugt þeirra fyrir.