150. löggjafarþing — 122. fundur,  22. júní 2020.

fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.

434. mál
[12:29]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Í ræðum mínum í fyrradag talaði ég mikið um samgöngur á landsbyggðinni og mig langar að halda því áfram vegna þess að mann rekur í rogastans vegna margs, sérstaklega í umsögnum, sem virðist ekki hafa náð í gegn þó að hv. samgöngunefnd hafi gert eins gott úr þessu og hægt er í mörgum málum.

Hér er ég með umsögn frá Samgöngufélaginu og mig langar að ræða það sem sagt er um samgöngumálin í sambandi við fyrirhuguð göng á Austfjörðum. Og langar mig að lesa upp úr því, með leyfi hæstv. forseta:

„Þótt heilshugar sé stutt að vetrareinangrun Seyðisfjarðar verði rofin með jarðgöngum og að sem fyrst verði ráðist í framkvæmdir við þau þykir nokkuð vel í lagt að gera í samgönguáætlun ráð fyrir um 13,4 km göngum undir Fjarðarheiði sem aðalvalkosti til lausnar þessum vanda. Göng þá leið mundu eingöngu nýtast, a.m.k. til að byrja með, þeim sem fara þyrftu milli Seyðisfjarðar og Héraðs. Í skýrslu sem gefin var út af samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu í júní 2019 og nefnist „Seyðisfjarðargöng – Valkostir og áhrif á Austurlandi“ er fjallað nokkuð um þá kosti sem í boði teljast og nýtast Seyðisfirði og væntanlega öllu Miðausturlandi sem best.“ — Svo heldur þetta áfram og ef ég gríp niður í valkostina — „Valkostur 1: Jarðgöng undir Fjarðarheiði. Valkostur 2: Jarðgöng undir Fjarðarheiði ásamt göngum til Mjóafjarðar og göngum þaðan til Norðfjarðar. Valkostur 3: Jarðgöng milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar, önnur undir Mjóafjarðarheiði milli Mjóafjarðar og Héraðs og þau þriðju milli Mjóafjarðar og Norðfjarðar. Valkostur 4: Jarðgöng milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar og önnur milli Mjóafjarðar og Héraðs.

Í skýrslunni er miðað við að kostnaður við gerð hvers kílómetra í göngum sé að jafnaði um 2.500 milljónir kr. en að kostnaður við Fjarðarheiðargöng, sem yrðu 13,4 km, sem áður segir, yrði um 33.500 milljarðar kr. Sýnist því um að ræða eitthvert dýrasta vegmannvirki Íslandssögunnar [...]

Nokkurri furðu sætir að í skýrslunni er ekki lagður til sá möguleiki að hafa sem fyrsta kost göng milli Seyðisfjarðar og Norðfjarðar í gegnum Mjóafjörð, en kostnaður við tvenn göng milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar (5,5 km) og Mjóafjarðar og Neskaupstaðar (6,8 km) er hins vegar í skýrslunni áætlaður 30.800 milljarðar kr.“

Sem sagt 3 milljörðum ódýrara en Fjarðarheiðargöng. Það sem ég tek út úr þessu er að samgönguráðherra er búinn að segja að Fjarðarheiðargöng verði gerð. Þegar ég var á ferð þarna fyrir austan ásamt félögum mínum í vetur hélt ég að þokkaleg sátt væri um þetta, en svo var ekki á milli fjarða og Héraðs. Fjarðabúum fundust aðrir kostir betri, eins og ég les í skýrslunni. Mér finnst það ábyrgðarhluti hjá hæstv. ráðherra að vinna þetta mál ekki betur og leiða það í jörð að íbúarnir fyrir austan séu sáttir við niðurstöðuna, heldur skilja málið eftir í fanginu á fólkinu á svæðinu þannig að það fari að rífast sín á milli um hvaða kostur sé bestur. Þá skeður ekki neitt. Það er bara þannig, það skeður ekki neitt. Peningurinn sem er áætlaður í þetta verður þá ekki notaður í þetta og málið tefst áfram. Þetta finnst mér svolítið gegnumsneitt í ýmsum málum sem ég les um í sambandi við samgönguáætlun. Þau eru illa unnin og ekki í sátt við þá sem næst standa þeim verkefnum sem á að vinna.

Hæstv. forseti. Ég óska eftir því að verða settur aftur á mælendaskrá.