fyrirvari í nefndaráliti.
Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á að taka undir með hv. þm. Jóni Steindóri Valdimarssyni um breytingarnar varðandi Nýsköpunarsjóðinn og þær breytingartillögur sem verið er að gera varðandi Kríu. Það var tvímælalaust að hans frumkvæði og málflutningi í nefndinni sem þær breytingartillögur eru komnar.
Hvað varðar að áheyrnarfulltrúi geti ekki í raun komið fram sínum skriflega fyrirvara: Það er að hálfu leyti rétt, að því leyti að nefndin getur leyft áheyrnarfulltrúa að bóka eða vera samþykkur nefndaráliti. Ef meiri hlutinn ætlar að fara að segja nei, þá er það mjög áhugavert því að þegar allt kemur til alls, ef áheyrnarfulltrúa er leyft að vera með samþykki með fyrirvara, þá á hann að sjálfsögðu að geta gert skriflega grein fyrir þeim fyrirvara eins og allir aðrir þingmenn eru beðnir að (Forseti hringir.) gera. Spurningin er þá: Ætlar meiri hlutinn að neita áheyrnarfulltrúa um að vera með fyrirvara og undirrita nefndarálitið eða ekki?