fyrirvari í nefndaráliti.
Hæstv. forseti. Ég ætlaði ekki að koma upp aftur en hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir varð til þess að ég ákvað að gera það þegar hún sagði eitthvað á þá leið að þingmenn meiri hlutans gætu ekki borið ábyrgð á nefndaráliti ef þeir væru ekki sáttir við fyrirvara. En fyrirvarinn er ekki við texta meiri hlutans í nefndarálitinu. Hann er við málsmeðferðina í nefndinni. Fyrirvarinn á í rauninni ekki að skipta meiri hlutann neinu máli vegna þess að verið er að fjalla um fyrirvarann sem viðkomandi þingmaður hefur á því að styðja málið. Ef sá sem vill vera með fyrirvara í nefndaráliti þarf alltaf að bera það undir meiri hlutann veltir maður fyrir sér til hvers það er. Er meiri hluti fjárlaganefndar að innleiða einhverja nýja stefnu hér, einhverja ný vinnubrögð? Er það það sem við sjáum hér? Ég kannast ekki við að þetta hafi verið stundað annars staðar.