fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Herra forseti. Í síðustu ræðu minni ræddi ég um lausnargjaldið. Ég held að flestir hafi áttað sig á því hvers efnis þetta lausnargjald var. Lausnargjaldið var til að losa íbúa höfuðborgarsvæðisins úr herkví, úr þeim umferðarteppum sem hér hafa verið árum saman. Og hverjir reiddu fram lausnargjaldið? Það voru nágrannasveitarfélögin sem ákváðu að ganga til samninga við meiri hlutann í Reykjavík um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til að ná fram einhverri bragarbót á stofnæðum og mislægum gatnamótum. Þau voru reiðubúin að leggja fram hlut og greiða fyrir þessa svokölluðu borgarlínu þó að hugmyndir um hana séu næsta þokukenndar. Þau voru samt reiðubúin að ganga til samninga og reiða fram þetta fé, greiða lausnargjaldið, til að binda endi á það framkvæmdastopp sem hér hefur verið. Þau hafa upplifað sig í herkví árum saman og greiddu lausnargjaldið til að losna úr henni. Ég er hins vegar sífellt meira hissa á því að ríkisvaldið skyldi einnig ganga inn í þennan sáttmála þrátt fyrir þokukenndar áætlanir varðandi borgarlínu. Ég geri verulegar athugasemdir við að gengið hafi verið inn í þennan sáttmála, eins óljósar og allar áætlanir um hann og árangurinn af honum eru.
Mun borgarlína verða til þess að umferð á höfuðborgarsvæðinu verði greiðari? Mjög margir halda öðru fram. Það er loksins núna, herra forseti, sem gagnrýnin umræða um borgarlínuna er að skapast. Hvað sem veldur hafa menn hingað til ekki lagt í að gagnrýna hana. Nú opnast allar flóðgáttir, herra forseti. Í Morgunblaði dagsins voru a.m.k. þrjár greinar þar sem fjallað er um borgarlínu. Ég held að mér sé óhætt að segja að allir sem skrifuðu þær greinar gagnrýni hana harkalega, hver á sinn hátt. Fyrir viku síðan var mjög ítarleg grein í Kjarnanum eftir umferðarverkfræðinginn Þórarinn Hjaltason þar sem hann gagnrýnir borgarlínuna og heldur því fram að framsetning á henni sé áróðurskennd, að það sé eins og verið sé að reka áróður en ekki að upplýsa eða greina frá staðreyndum og rannsóknum og því hvað sé í bígerð.
Ég ætla að lesa upp ályktanir forystumanns Sjálfstæðismanna í borginni, Eyþórs Arnalds, sem skrifaði í Morgunblaðið í morgun grein með yfirskriftinni Óvissuferð. Hann lýkur greininni á þessum orðum, með leyfi forseta:
„Í staðinn er farið í verkefni sem á að kosta meira en 70 milljarða og alger óvissa er um. Þetta er gert á sama tíma og tekjur skreppa saman vegna kóvídkreppu. Væri ekki nær að fara í það sem er árangursríkt, fyrirsjáanlegt og skynsamlegt?“
Þetta segir oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík í Morgunblaði dagsins og í leiðara blaðsins í morgun ályktar leiðarahöfundur, með leyfi forseta:
„Það er dapurlegt þegar jafn mörg brýn verkefni í samgöngumálum og raun ber vitni liggja fyrir um allt land, þar með talið á höfuðborgarsvæðinu, skuli þingið nú vinna að því að sóa tugum milljarða, eða jafnvel enn hærri fjárhæðum, í framkvæmd sem í besta falli gerir ekkert gagn en verður að líkindum til að tefja umferð á svæðinu enn frekar.“
Ég mun halda áfram að vitna í þessa grein í næstu ræðu minni, herra forseti.