150. löggjafarþing — 122. fundur,  22. júní 2020.

fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.

434. mál
[20:10]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Mig langar í ræðu minni að benda á tækifæri sem í öllum þessum borgarlínuvangaveltum felst, þ.e. að við getum, sem sagt samgönguyfirvöld, Vegagerðin, ráðuneyti, Reykjavíkurborg, nágrannasveitarfélögin, gert tilraun í haust. Við getum gert tilraun sem er þeirrar gerðar, ótrúlegt tækifæri í rauninni — það er ekki oft sem er hægt að framkvæma tilraun með jafn nákvæmum hætti og við eigum möguleika á í þessum efnum — þ.e. að loka fyrir þær umferðaræðar sem fyrirséð er að lokað verði fyrir þegar borgarlínan verður komin í gang, komist hún einhvern tíma í gang. Þetta þýðir að við getum séð hvernig þetta verður með því að loka einni akrein í hvora átt á Suðurlandsbraut, svo dæmi sé tekið, loka einni akrein í hvora átt á öllum þeim hinum götum þar sem ætlunin er að þrengja að flæði hefðbundinnar umferðar, útfæra einstefnugötur, einstefnuakstur, þar sem á að gera slíkt, eins og t.d. á leiðinni niður á Hlemmsvæðið, loka allri umferð í kringum það svæði, og þar fram eftir götunum. Í öllum þeim forsendum sem notast er við er gengið út frá því að heildarbílaumferð verði meiri. Þrátt fyrir að markmið borgarlínu um fjölgun þeirra sem nýta sér almenningssamgöngur næðist, jafn ólíklegt og það kann að vera, er því spáð að bílum á götum Reykjavíkurborgar, höfuðborgarinnar, muni fjölga.

Við eigum því þetta ótrúlega tækifæri, segjum bara upp úr miðjum ágúst, þriðju vikuna í ágúst, eitthvað svoleiðis, að loka þessum akreinum og gera raunverulega tilraun á því hvaða áhrif það hefur, gera eina akrein í hvora átt þar sem það er áætlað og þar fram eftir götunum og sjá hvers lags köku allt fer í á höfuðborgarsvæðinu. Munurinn verður sá að ef við keyrum þessa tilraun í gegn núna í haust, það verður sérstaklega áhugavert að sjá hvernig ástandið verður þegar skólar byrja um mánaðamótin ágúst/september, mun blasa við öllum hvers lags brjálæði þetta verður, nái þessi markmið fram að ganga eins og þau liggja fyrir núna. Það sem á að gera, til að mynda á Suðurlandsbrautinni þar sem ætlunin er að fækka akreinum fyrir almenna umferð um helming, úr tveimur í hvora átt í eina í hvora, mun valda miklum töppum. Þetta mun alveg örugglega þrýsta umferð út á Miklubrautina umfram það sem annars hefði verið og koll af kolli. Þarna höfum við tækifæri til að sjá raungerast öll þau vandamál sem þetta framtíðarskipulag mun kalla yfir umferð á höfuðborgarsvæðinu en munurinn verður sá að ef við gerum þetta þá getum við tekið keilur í burtu, þrengingarnar í burtu og leitað skynsamlegri og betri lausna en þarna eru útlistaðar.

Ég held að það sé versta niðurstaðan af öllum mögulegum í þessu máli ef farið verður í allar þær framkvæmdir sem ætlaðar eru í tengslum við svokallaða borgarlínu, að þær raungerist allar, fjárfesting upp á 50 milljarða, plús alla framúrkeyrsluna sem eru allar líkur á að verði, og við sitjum uppi með samgöngukerfi þar sem allt verður í köku á höfuðborgarsvæðinu. Menn munu sakna þess tíma sem nú er, jafnvel verstu stundanna. Við eigum tækifæri til að gera raunhæfa rannsókn á þessu í haust. Ég held að það sé tilraunarinnar virði að Reykjavíkurborg íhugi þetta, að loka þeim akreinum í haust sem verður lokað í tengslum við borgarlínu af því að það er búið að flagga því að áætlað sé að bílum muni fjölga áfram frá því sem nú er þrátt fyrir að mikill árangur náist með borgarlínunni, verði það raunin. Þetta er tilraun og tækifæri sem við eigum ekki að láta fram hjá okkur fara og ég er alveg handviss um þetta mun virka sem vekjaraklukka á okkur öll sem hér erum.