150. löggjafarþing — 122. fundur,  22. júní 2020.

fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.

434. mál
[22:50]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Það hefur verið farið ágætlega yfir það í ræðum hér í kvöld að fjárhagur Reykjavíkurborgar er mjög bágur. Því er það örugglega meiri háttar búhnykkur að fá allt í einu samning upp í hendurnar þar sem ríkið lofar að greiða 50 milljarða í framkvæmd sem er algerlega óútreiknuð, hvort tveggja með hvað það kostar að reisa og hvað kostar að reka. Forsjálni í fjármálum hefur í sjálfu sér aldrei fylgt þeim meiri hluta sem nú er starfandi í Reykjavík og hefur stjórnað þessari borg í um 12 ár eða svo.

Ég sagði frá því í ræðu um daginn að þegar menn vildu kynna sér nýjungar í gjaldmælum, þ.e. í bílastæði, fór ansi stór sendinefnd til San Francisco í Bandaríkjunum til að skoða stöðumæla. Menn grípa gjarnan til einhverra svona ráða þegar eitthvað stendur til. En núna þegar allt í einu er veifað framan í borgina samningi upp á 50 milljarða þátttöku ríkisins í þessu verkefni sem við höfum verið að ræða, þá fara menn á flug. Formaður skipulagsnefndar á Reykjavíkursvæðinu sagði núna á dögunum að nú væri kominn tími til að fara að skoða lestarkerfi, herra forseti, ofan í þetta hér. Borgarstjórinn, blessaður, sagði eitthvað á þá leið í viðtali að hafnarstrætó væri ómótstæðileg tilraun. Auðvitað er ómótstæðilegt að gera svona tilraunir ef einhver borgar fyrir mann. Þetta er eins og að koma inn í kaupfélag og afgreiða sig sjálfur og láta skrifa hjá afa allt sem maður tekur út. Þá kaupir maður náttúrlega allt sem mann langar til, rugguhest og rafmagnslest og hvað manni dettur í hug. Það virðist ekki vera neinn endir á galskapnum núna þegar rétt hillir í að þetta ævintýri byrji, þá byrja menn að planleggja næsta ævintýri sem er jarðlest, léttlest, og hafnarstrætó. Ég held að menn hafi tekið það besta af öllu sem þeir sáu og hugsað með sér: Þetta er gott að hafa hér. Jú, við höfum séð léttlest í Kaupmannahöfn sem telur milljón íbúa, Árósum sem telur 350.000 íbúa. Álaborgarar eru hættir við. Þeir eru jafn margir og Reykvíkingar. Þeir eru hættir við, þeim datt ekki í hug að fara út í þetta. Jú, hafnarstrætó er líklega í Stokkhólmi sem er borg upp á 1.000.000–1.200.000 manns. Þetta vilja menn allt saman prófa í Reykjavík. Það er náttúrlega, eins og ég sagði áðan, eins og að fara inn í kaupfélagið og afgreiða sig sjálfur og láta skrifa hjá afa, því að ef það er einhver sem tekur upp reikninginn þegar þú ert búinn að eyða öllum peningunum þá má þér svo sem standa á sama hvernig þetta fer allt saman, og eins og þar stendur er auðvelt að vera örlátur á annarra manna fé.

Ég tek hins vegar eftir því, herra forseti, og veldur nokkrum áhyggjum, að það eru tvö svæði á höfuðborgarsvæðinu sem eru algjörlega út undan í þessari samgöngubót, alla vega fyrstu tveimur köflum hennar. Það er annars vegar Seltjarnarnes og hins vegar Álftanes, sem er hluti Garðabæjar. Ég hef farið yfir það hér áður að það virðist vera einhver stefna Reykjavíkurborgarstjórans að koma í veg fyrir að Seltirningar geti komist að og frá Reykjavík því að verið er að þrengja að alls staðar. Það er verið að þrengja að Hringbrautinni, það verið að þrengja að Birkimelnum. Það á að fara að setja upp tíu umferðarljós á Eiðisgranda. Ekki sleppa menn út Ægissíðuna því að hún er 30 km gata. Kannski er hafnarstrætóinn sem blessaður borgarstjórinn var að boða ætlaður Seltirningum. Kannski eigum við bara að hoppa um borð í Bakkavörinni eða þar í grennd og sigla til Reykjavíkur, sem væri örugglega skemmtilegt á sumardögum en ég er ekki viss um að það sé skemmtilegt í norðaustangarranum sem stundum ríkir hér.

Ég ætlaði að fara betur yfir þetta, herra forseti, en tíminn endist ekki til þannig ég bið hæstv. forseta að setja mig á mælendaskrá aftur.