fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Forseti. Ég er komin þar að í plagginu um heildarstefnu í almenningssamgöngum milli byggða þar sem fjallað er um hagkvæmar samgöngur. Ég var síðast að tala um þann kafla sem sneri að öryggi og endaði á því að segja að mikilvægi öruggra samgangna verður seint ofmetið enda hvert mannslíf ómetanlegt. Næsti kafli er um hagkvæmar samgöngur. Það segir hér nærri því fyrst að vitað sé að fjármagn er takmörkuð gæði í opinberri þjónustu og því sé mikilvægt að það nýtist sem best og ávallt sé leitað leiða til að hámarka gæði og þjónustu eins og hægt er.
Þessum kafla fylgir tafla sem er mjög svipuð og fyrri töflur. Það er farið yfir tvö atriði, í fyrsta lagi verðlag innanlandsflugs samanborið við þróun almenns verðlags. Staðan 2018 er sett á kvarðann 100 og að æskileg staða 2024 verði það sama eða lægra. Í öðru lagi er verðlag í almenningsvögnum samanborið við þróun almenns verðlags og er sami kvarði settur á það, staðan 2024 verði sambærileg við 2018 eða talan lægri.
Helstu áherslur til að ná þessum markmiðum um hagkvæmni eru, með leyfi forseta:
„1. Greina þarf leiðir til þess að ferðalög með almenningssamgöngum séu samkeppnishæf við valmöguleikann að „aka einn í bíl“, þ.m.t. uppbyggingu gjaldskrár og almenn fargjöld.
2. Tryggja að leiðakerfi og þjónusta ferðamátanna þriggja sé samþætt. Mikilvægt er að saman fari fjárhagsleg ábyrgð og ábyrgð á skipulagningu þjónustunnar.
3. Greiða leiðir til þess að styrkja lagaumhverfi almenningssamgangna svo það styðji betur við þjónustuna. Sömuleiðis verður löggjafinn að vera vakandi fyrir tækifærum sem þróun á sviði samgöngulausna geta veitt og að tryggja að löggjöf fylgi með, styðji við en hindri ekki framgang þeirra.“
Það er að lokum tekið saman hvaða áhrif þetta hefur á íslenskt samfélag. Skilvirkur rekstur almenningssamgangna er lykilþáttur, er sagt hérna, og enn og aftur fjallað um að þjónustan þurfi að ná að vaxa og dafna öllum til hagsbóta. Tækifæri séu til að nýta nýjar lausnir á sviði samgangna og deiliþjónustu við að útvíkka þjónustusvæði þannig að landsmenn hafi aðgang að henni rétt hjá heimili sínu. Einnig er tiltekin samkeppnishæfni fargjalda og einfölduð verðskrá sem sé augljós leið til að styrkja samkeppnishæfni almenningssamgangna. Þetta er undir þeim kafla að ríkið sjái um þessar almenningssamgöngur.
Markmið 4 er um almenningssamgöngur sem lykilþátt í loftslagsmarkmiðum stjórnvalda. Það er byrjað á töflu sem fyrr. Þar er kolefnislosun á hvern farþegakílómetra í innanlandsflugi og ákveðið að árið 2024 eigi að minnka hana um 10% miðað við stöðuna núna. Sama er tekið til í ferjusiglingum og vegna aksturs almenningsvagna, að losunin verði 10% minni en í dag.
Ég læt þetta duga í bili og bið hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.