fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Herra forseti. Ég er að vinna að verkefni sem mér var falið, að leita að rekstraráætlun borgarlínu. Ég hef einungis þær fréttir að leitin hefur ekki árangur borið enn sem komið er og er ég að gúgla þetta í gríð og erg. Ég fann viðamikla skýrslu upp á 43 blaðsíður, útgefna af Stjórnarráðinu, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem ber heitið Uppbygging samgangna á höfuðborgarsvæðinu til 2033. Það er ítarleg skýrsla um almenningssamgöngur og ýmislegt annað varðandi fjárfestingarþörf og fleira. Ég leitaði í henni að einhverju sem heitir rekstur eða rekstraráætlun eða eitthvað slíkt en það bar engan árangur. Þar er ekkert fjallað um hvað gerist eftir að búið er að koma borgarlínu á fót, hvernig á að reka almenningssamgöngur sem kallast borgarlína. Það er ekkert að finna þarna og ég er ekki enn búinn að finna neitt en mun að sjálfsögðu halda áfram. Ég trúi því ekki, herra forseti, bara trúi því ekki fyrr en ég tek á því, að ekkert hafi verið fjallað um það hvernig á að reka þetta apparat, með öllum þessum starfshópum og nefndum og stýrihópum sem hafa greinilega verið að undirbúa verkefnið miðað við þessa skýrslu og þá sem ég var síðast með og vefinn borgarlínan.is.
Herra forseti. Ég hef hitt ýmsa á langri leið. Fólk sem fer út í rekstur og ætlar sér að stofna fyrirtæki, þótt lítið sé, kannski bara svokallaðan sjoppurekstur, kaupir ekki sjoppu án þess að huga að því fyrst að gera áætlun um það hverjar tekjurnar og útgjöldin verða. Þar er, eins og allir vita sem hafa komið nálægt rekstri, að ýmsu að hyggja. Hverjir eru möguleikarnir til tekna og hver er kostnaðurinn? Það er launakostnaður og rafmagn og ýmislegt annað, hitakostnaður og fleira og svo hugsanlega einhver arður til eigenda. Þetta hugsa allir. Það er ekki til sá aumi rekstur, þótt starfsmenn séu jafnvel bara einn eða tveir, að menn hugsi ekki fram í tímann hvernig þeir ætli að reka fyrirtækið.
Herra forseti. Ég veit ekki hvort þetta er stærsta framkvæmd Íslandssögunnar, upp á 80 milljarða. Það má vera að ég gleymi einhverju en mig rekur ekki minni til nokkurrar einstakrar framkvæmdar sem fer svo hátt, í 80 milljarða. Hún er komin þetta langt en undirbúningurinn hefur aðallega falist í að búa til fallegar umbúðir og falleg orð. Ég er búinn að lesa fullt af fallegum orðum um hágæðasamgöngur og það er fullt af slíkum orðum að finna í þessari skýrslu, „hágæða“ og „yfirbyggt“ og fleira og fleira en það er ekkert um reksturinn. Á ég að trúa því að nágrannasveitarfélög Reykjavíkur ætli að ganga inn í þetta verkefni án þess að gera sér neina grein fyrir því hvort þetta verði baggi á þeim í framtíðinni? Eru menn svo skammsýnir, herra forseti? Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því. Eru menn svo skammsýnir?