fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Frú forseti. Mér hefur orðið nokkuð tíðrætt um það í kvöld hvað hægt er að fá fyrir 50 milljarða vegna þess að það er upphæðin sem virðist vera föl úr ríkissjóði til þess að leggja í þetta ævintýri, hvenær sem það verður að veruleika. Mér hefur fundist það undarlegt vegna þess að ég hef ekki orðið var við það undanfarin 10–15 ár að gerð sé alvörutilraun til að gera strætisvagnakerfið á höfuðborgarsvæðinu viðskiptavænna og notendavænna. Það hefði t.d. verið hægt að gera með því að hafa frítt í strætó og gera tilraunir með það vegna þess að búið er að eyða 9 milljörðum í að koma nýtingunni úr því að vera 4% í það að vera 4%, á níu árum. Þessa peninga hafa menn ekki talið eftir. En nú erum við að tala um rúmlega fimmfalda þá upphæð og við hyggjumst með því, ef ég hef tekið rétt eftir, þrefalda nýtinguna á almenningssamgöngum, úr 4% í 12%.
Í sjálfu sér, frú forseti, er þetta algjörlega óskrifað blað. Ég hef ekki séð neinar rannsóknir sem liggja að baki þeim fullyrðingum sem þessar áætlanir undirbyggja þannig að ég held að það hefði verið nauðsynlegt fyrir okkur að fá að sjá það. Við þessar aðstæður, þegar ríkissjóður á ekkert rosalega mikið af peningum, á að fara út í eitthvað svona og þarna flæða út 50 milljarðar. Þetta stoppar ekki þarna, frú forseti. Formaður skipulagsnefndar Reykjavíkurborgar sagði um daginn að næsta skref væri léttlest. Hún ætti bara að koma í humátt eða jafnvel samhliða eða ég veit ekki hvað.
Frú forseti. Það blasir við að næstu 15 árin hið minnsta munum við reka a.m.k. tvö almenningsvagnakerfi. Við munum reka strætó og reka borgarlínu, verði þetta allt að veruleika, og hún mun síðan blása út og stækka. Ég vil enn einu sinni minna á hugmynd Péturs Ármannssonar arkitekts sem kom fram fyrir 15 árum. Hún var algjörlega óumdeild og gekk út á að lína væri úr miðborginni og inn í Skeifu. Hún var einn tíundi af því sem nú er áætlað að gera. Hún hefði örugglega liðkað mjög til og þá kemur aftur það sem ég hef verið að gagnrýna hér, sem blasir við á korti af fyrsta áfanga borgarlínu sem á að byrja uppi á Höfða, fara niður í Voga, á Suðurlandsbraut og niður á Hverfisgötu, frú forseti, af öllum götum. Talandi um að auka lífsgæði íbúa. Ég held að lífsgæði íbúa við Hverfisgötu, sem nú er verið að byggja upp sem íbúagötu og íbúðagötu, muni ekki batna við það að hafa þessi skrímsli sem borgarlínuvagnarnir eru væntanlega, eftir teikningum og myndum sem maður hefur séð af þeim, yfir höfðinu á sér alla daga. Svo á leiðin að liggja um Lækjargötu og Skothúsveg, frú forseti. Ég segi aftur: Hvernig ná menn beygjunni af Lækjargötu inn á Skothúsveg á strætisvagni sem er í þremur liðum og kannski 18 metra langur? Mér þætti gaman að sjá það, svo að ég vitni nú í Halla og Ladda. En síðan liggur leiðin yfir væntanlega brú yfir Fossvog og um tvær 60 ára gamlar íbúðagötur í Kópavogi að Smáralind. Það eru 25 stopp á 13 km. Ég segi: Manni sem fer upp í þetta apparat uppi á Höfða og fer alla þessa leið, hring um Reykjavík nánast, liggur ekki mikið á vegna þess að ég get ekki séð að þetta verði það hraðaksturstæki sem menn (Forseti hringir.) vilja vera láta.
Þetta þarf ég að halda áfram með og reyna að klára í næstu ræðu og mér þætti vænt um ef hæstv. forseti setti mig á mælendaskrá aftur.