150. löggjafarþing — 123. fundur,  23. júní 2020.

sorgarorlof foreldra.

653. mál
[11:42]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Herra forseti. Ég vil eins og aðrir þakka fyrirspyrjanda kærlega fyrir spurningarnar. Þetta er mál sem vert er að vekja athygli á. Ég hefði gjarnan viljað heyra frá ráðherra hvenær hann sæi fyrir sér að hægt væri að leggja fram þingmál eða fá í það minnsta fram mál sem tæki á vandanum eða ástandinu, eða hvað við eigum að kalla það sem hv. þm. Brynjar Níelsson ber hér upp. Mér þætti vænt um ef ráðherra gæti gefið okkur einhverja hugmynd um það hvenær hann sæi fyrir sér að við myndum sjá þingmál sem tæki á því ástandi eða þeim atburðum sem fólk sem lendir í slíkri sorg upplifir.