150. löggjafarþing — 126. fundur,  24. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[14:21]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég ætla að leggja nokkur orð í belg um þetta frumvarp um heimild til að stofna opinbert hlutafélag vegna uppbyggingar samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Frumvarpið var lagt fram að uppfylla og efna hlut ríkisins í sáttmála sem skrifað var undir í lok september síðastliðins sem ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborg, Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær og Seltjarnarnes, gerðu með sér til að efla innviði á svæðinu.

Ég vil vekja athygli á ýmsu í þessu frumvarpi og kannski byrja á því sem mér er efst í huga fyrir utan borgarlínuna, en það er framlag ríkisins í samkomulagið. Gert er ráð fyrir að verkefnið, þ.e. uppbygging samgöngumannvirkja á svæðinu sem felur í sér uppbyggingu stofnbrauta, hjólastíga, göngustíga og síðan borgarlínu, kosti í heild 120 milljarða kr. Og hver er hlutur ríkisins? Hann á að vera 45 milljarðar. Þá eru eftir 75 milljarðar. Hlutur sveitarfélaganna á að vera þrefalt minni, 15 milljarðar, einn þriðji af hlut ríkisins.

Hlutur ríkisins á að vera í formi fjárframlaga upp á 30 milljarða og restin á að koma vegna eignasölu. Þar hef ég athugasemdir við framlag ríkisins. Gert er ráð fyrir að þeir 15 milljarðar komi úr þróun og sölu á Keldnalandinu sem er verðmætasta og líklega eftirsóttasta stóra óbyggða svæðið á höfuðborgarsvæðinu nú um stundir. Ríkið ætlar að leggja það inn í þetta félag sem mun skilja sig frá ríki og sveitarfélögum og mun auðvitað starfa lítt háð þessum aðilum eins og þau opinberu hlutafélög sem við þekkjum hafa verið að gera. Það á eftir að skipuleggja Keldnalandið og byggja á því þannig að það kemur í ljós hversu verðmætt það verður þegar sú skipulagning liggur fyrir. Það getur hugsanlega orðið dýrara en nú er talið en félagið fær fjármagnið og hefur líklega frjálsar hendur með skiptinguna.

Ég hef áhyggjur af þeirri skiptingu og hef áhyggjur af fjármagninu sem fer þarna inn. Það er auðvitað í höndum félagsins hvernig því verður skipt þegar fram líða stundir, hvort það verður lagt í tilteknar framkvæmdir eða borgarlínuna eða eitthvað annað. Það verður þá í höndum félagsins. Ég hef auðvitað áhyggjur af því. Reynslan af opinberum hlutafélögum er slík að það er kannski erfitt um vik fyrir stjórnvöld og þá eigendur, sérstaklega ef þeir eru margir og jafnvel þótt það sé bara ríkið, að vasast eitthvað í svona félögum sem hafa tekið ákveðna stefnu. Það er engin sérstök trygging fyrir því, herra forseti, að fjármagnið, sem getur verið breytilegt, fari í eina framkvæmd frekar en einhverja aðra. Mér sýnist menn í frumvarpinu forðast t.d. að nefna mislæg gatnamót. Þau eru ekki nefnd heldur bara uppbygging stofnvega. Það er eins og menn séu hræddir við að nefna þau og veigri sér við því að nefna þær bráðnauðsynlegu umbætur sem (Forseti hringir.) bygging mislægra gatnamóta er.