150. löggjafarþing — 126. fundur,  24. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[15:23]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M):

Herra forseti. Stærstu vandamálin við þetta mál sem ég vildi leggja áherslu á eru tvö. Annars vegar er málið reist á rangri forgangsröðun þar sem borgarlína svokölluð, sem enginn veit nákvæmlega hvað er og hvergi hönd á festandi, er tekin fram yfir Sundabraut sem er nauðsynleg framkvæmd, nauðsynleg til að greiða fyrir umferð, tryggja öryggi og tengja Kjalarnes betur við höfuðborgina. Þessi ranga forgangsröðun á sér rætur í og mótast af, að því er best verður séð, einhverri sérvisku og jafnvel þvermóðsku af hálfu borgarstjórnarmeirihlutans í Reykjavík. Það er stórfelldur ábyrgðarhluti að þeir sem bera ábyrgð á ríkisfjármálum skuli ljá máls á því að ætla að setja í það tæpa 50 milljarða, talan sem er í þingskjölunum er 49,6 milljarðar, og svo á að fórna Keldnalandi í því skyni. Sagt er í greinargerðinni með frumvarpinu að það komi til skoðunar að ríkið fjármagni verkefnið með sérstökum framlögum vegna eignasölu. Nánar tiltekið segir að það komi til greina að ríkið fjármagni, eins og það er orðað, þennan hluta uppbyggingarinnar með sérstökum framlögum vegna eignasölu, t.d. með sölu á Íslandsbanka. Í tvígang er vikið að þessu í greinargerðinni. Á öðrum staðnum er Íslandsbanki beinlínis nefndur, á hinum staðnum er þetta rætt almennt. Það á miklu að kosta til þessarar borgarlínu sem virðist eiga að þjóna 4% borgarbúa, með fyrirætlunum um að fjölga þeim. Munum það, herra forseti, að hér hefur staðið yfir tilraunaverkefni árum saman, með milljarðsframlagi á ári hverju, til að auka hlut almenningssamgangna, sem eru góðar og gildar út af fyrir sig, en hlutur notenda þess ferðamáta hefur bara ekki breyst.

Þá erum við komin að hinu stóra vandamálinu, þeirri neyslustýringu sem hér á að fara í. Hún á að fara fram með skattlagningu og þessir skattar fá áferðarfögur nöfn eða heiti, flýtigjöld og umferðargjöld. En þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning á íbúa á höfuðborgarsvæðinu og hverju á þetta að skila? Jú, gert er ráð fyrir að þessi skattlagning, á þeim 15 árum sem málið tekur til, verði 60 milljarðar sem á að hafa af fólkinu og hvað fær fólkið í staðinn? Eftir að hafa greitt með sköttum sínum 50 milljarða í verkefnið og svo 60 milljarða í viðbót í sköttum á það að sjá á bak verðmætasta landsvæði höfuðborgarinnar, og e.t.v. eins konar perlu í eignasafni ríkisins, sem er Keldnalandið. Og fyrir hvað er það að borga? Fyrir að fá náðarsamlegast að horfa upp á fækkun akreina fyrir fjölskyldubílinn af því að það þarf að taka akreinar fyrir þessi risastóru umferðarskrímsli, tvo samtengda strætisvagna eins og við þekkjum, og þetta á að skrölta um alla borg og taka til sín akreinar á vegum sem núna þjóna fjölskyldubílnum og fólk á að borga fyrir það. Það eru stóru vandamálin í þessu.

Síðan eru auðvitað mjög sérkennilegir hlutir í frumvarpinu, t.d. um samskipti opinbera hlutafélagsins og sveitarfélaganna. Gert er ráð fyrir að eitt af verkefnum félagsins sé að fylgja því eftir, eins og það er orðað, að sveitarfélögin vinni að nauðsynlegum breytingum á skipulagsáætlunum. Við hvað er átt?

Svo á að vera mjög sérkennilegt samband við Vegagerðina. Vegagerðin er stofnun sem heyrir undir samgönguráðherra og samgönguráðuneytið og það er pínulítið vandræðalegur texti í greinargerðinni, þar segir að í 2. mgr. 3. gr. komi fram að félagið hafi heimild til samningsgerðar við Vegagerðina um hönnun og framkvæmd verkefna sem falla innan hlutafélagsins. Svo segir í framhaldi af því, með leyfi forseta:

„Í ljósi þess að stór hluti framkvæmdanna er formlega á ábyrgð Vegagerðarinnar er gengið út frá því að félagið geri slíkan samning við stofnunina um framkvæmd einstakra verkefna. Því er mikilvægt að félagið fari með yfirumsjón og eigendaeftirlit með uppbyggingu samgöngumannvirkja gagnvart Vegagerðinni …“

Vegagerðin er stofnun, frú forseti, sem heyrir undir ráðherra sem starfar í krafti lýðræðislegs umboðs kjósenda. En nú virðist Vegagerðin eiga að sæta því að þetta opinbera hlutafélag fari með yfirumsjón og eigendaeftirlit með uppbyggingu samgöngumannvirkja gagnvart Vegagerðinni og sömuleiðis eigi félagið að gæta að áætlanagerð og áhættustýringu vegna verkefnisins í heild. Það er mjög óljóst hvernig skipan mála er.

Í greinargerðinni segir enn fremur að miðað verði við að Vegagerðin bjóði út einstakar framkvæmdir í samráði við viðkomandi sveitarfélög á grundvelli samnings sem gerður verði við félagið. Félagið beri eftir sem áður ábyrgð á uppbyggingunni í heild sinni í samræmi við hlutverk þess. Enn fremur segir, með leyfi forseta:

„Þá kemur einnig til greina, ef það telst hagkvæmt fyrir framgang uppbyggingarinnar, að sveitarfélögum verði falið að annast afmarkaða þætti framkvæmda sem eiga sér stað innan marka viðkomandi sveitarfélaga …“

Er verið að taka sjálfsforræði sveitarfélaga af þeim og setja þau undir vald þessa félags? Það er eðlilegt að spurt sé að því vegna þess að þarna segir líka, með leyfi forseta:

„Gert er ráð fyrir að í samningi félagsins við Vegagerðina verði þáttur tiltekinna sveitarfélaga í einstökum verkefnum skilgreindur. Þannig kemur einkum til skoðunar að einstök sveitarfélög haldi utan um afmarkaða þætti framkvæmda, t.a.m. í tengslum við uppbyggingu á göngu- og hjólreiðastígum.“

Það verður að skýra miklu betur en gert er í greinargerð með þessu frumvarpi hvaða fyrirkomulag og stjórnarform á að vera á þessari uppbyggingu á samgöngumannvirkjum. Síðan er, eins og ég gat um í minni fyrri ræðu, svolítið sérkennilegt að það er eins og stjórn félagsins verði tekin úr sambandi, í vissum tilfellum a.m.k., því gert er ráð fyrir sérstökum stýrihópi eigenda og nánar á að útfæra það í hluthafasamkomulagi sem hvorki hefur sést tangur né tetur af og hefði farið betur á því, frú forseti, að það lægi fyrir, a.m.k. í drögum. Sömuleiðis á stýrihópurinn að fara yfir stefnumótandi mál, þ.e. hafa með höndum stefnumörkun, og eins og ég gat um í minni fyrri ræðu á stýrihópurinn að veita stuðning við úrlausn ágreiningsmála. Hvaða dulmál er þetta eiginlega, frú forseti? Af hverju er þessi texti ekki á íslensku þannig að fólk geti skilið hvaða verkefni þessi stýrihópur á að hafa með höndum og hvert valdsvið hans er? Það eru fleiri álitaefni í þessu máli, frú forseti, svo ég bið vinsamlega um að vera skráður að nýju á mælendaskrá.