heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Frú forseti. Ég ætla að fara aðeins yfir 6. gr. frumvarpsins sem fjallar um samning um uppbyggingu innviða. Þar segir, með leyfi forseta:
„Ríki og sveitarfélög skv. 1. gr. gera samning við félagið, einn eða fleiri eftir þörfum, þar sem nánar verður kveðið á um hlutverk félagsins vegna uppbyggingar samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu. Í samningi milli aðila skal m.a. kveðið á um fjármagnsskipan félagsins, nánari útfærslu einstakra framkvæmda, eignfærslu mannvirkja sem og ráðstöfun þeirra við slit félagsins.“
Frú forseti. Hér eru heilmikil álitaefni. Hér er að mínum dómi ekki vandað nægilega til verka. Ákvæði þetta er allt of óskýrt, þar sem talað er um eignfærslu mannvirkja sem og ráðstöfun þeirra við slit félagsins. Þá spyr maður sig: Hvert verður verðmatið þegar félaginu verður slitið og með hvaða hætti verður því útskuldað til eigenda? Hér segir ekkert um það. Verður það á kostnaðarverði eða á matsverði? Það verður að liggja fyrir, frú forseti. Það er nauðsynlegt að gera breytingu á þessu ákvæði ef þetta á að halda. Auðvitað á að útskulda þessum verkefnum á heildarkostnaðarverði, það segir sig sjálft. En það vantar hér inn.
Það er líka nauðsynlegt að spyrja um umframkostnað. Hvernig á að taka á honum? Það segir heldur ekkert um það. Það er náttúrlega alveg ótækt ef sett er saman samkomulag sem hefur í för með sér svo viðamiklar fjárhagslegar skuldbindingar að það sé ekki á hreinu hvernig félaginu verður slitið. Þegar því verður slitið eru eignirnar verðmætar og þá er gert ráð fyrir að þær færist yfir á viðkomandi sveitarfélög þar sem mannvirkin eru en það stendur ekkert um það á hvaða verði það á að gerast. Hér hefði verið nauðsynlegt að koma því á framfæri að allur kostnaður umfram kostnaðaráætlanir greiðist þá af meðeigendum ríkissjóðs. Það er bara ósköp einfalt. Það verður að tryggja að ríkissjóður greiði ekki allan umframkostnað. Ég er satt að segja mjög hissa á því, frú forseti, að ekki skuli hafa verið farið í saumana á því.
Ég vík þá aðeins að 7. gr. Yfirskrift hennar er: Yfirtaka og þróun lands í eigu ríkisins. Þar segir, með leyfi forseta:
„Félagið skal með sérstökum samningi við ráðherra taka við landi í eigu ríkisins ásamt þeim réttindum og skyldum sem því tengjast og telst það hluti af hlutafjárframlagi ríkisins. Í samningnum skal m.a. ákvarða afmörkun lands og skilyrði afhendingar þess til félagsins.“
Hér er álitaefnið stórt og mikið: Hvernig er þeim skilyrðum háttað þegar á að afhenda landið? Hvað með þau mannvirki sem eru þegar til staðar? Væntanlega þarf að flytja þau. Þarna eru heilmikil mannvirki á vegum ríkisins. Rannsóknasetrið að Keldum er þarna með öllum sínum mannvirkjum og þeirri góðu starfsemi sem þar er. Hér er ekkert tekið á því hver eigi að greiða kostnaðinn af því að flytja þá starfsemi, mannvirkin og allt sem að því lýtur.
Ég verð að koma nánar inn á það í næstu ræðu. Ég sé að tíminn er liðinn og bið frú forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá.