heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Frú forseti. Ég ætla að grípa niður í nefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar með þessu frumvarpi. Ég fór aðeins yfir frumvarpsgreinarnar fyrr í dag og mig langar að byrja á fjármögnuninni. Þar kemur fram að um sé að ræða alls 120 milljarða kr. fjármögnun á því 15 ára tímabili sem félaginu er ætlað að starfa. Gert er ráð fyrir að bein framlög ríkisins samkvæmt samgönguáætlun eigi að vera 2 milljarðar kr. á ári í 15 ár. Auk þess er miðað við að land að Keldum sé sett inn í það. Síðan er, eins og allir vita, verið að tala um sérstaka fjármögnun upp á 60 milljarða á þessum hlut ríkisins. Það sem truflar mig nokkuð er að í áliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar um samgönguáætlun er kallað eftir skýringum á vegalögum, þ.e. hvernig kostnaður við mannvirki í þéttbýli sé skýrður, það sé óskýrt. Ég velti fyrir mér hvort tengsl séu þá milli þess óskýrleika og þess sem fram kemur á bls. 2 og 3 í áliti meiri hlutans varðandi vegalög, nr. 80/2007, ég hef alla vega kallað eftir því hér að það sé skýrt hvort um sömu lög er að ræða, hvort það eru sömu meiningar að baki þessari setningu í þessu nefndaráliti við samgönguáætlunina en hér segir, með leyfi forseta:
„Rekstur samgöngumannvirkja fellur til Vegagerðarinnar og eftir atvikum sveitarfélaga, eftir tegund og eðli samgöngumannvirkja og í samræmi við ákvæði vegalaga, nr. 80/2007.“
Þá er það spurning hver þessi skipting er, sem talað er um í samgönguáætlun og nefndarálitinu, hvort hún er nógu skýr og hvort við erum að tala um sömu lög og sams konar túlkun. Ég óska eftir því að einhver komi og skýri þetta fyrir mér. Síðan er fjallað um forgangsröðun framkvæmda, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn bendir á að félaginu er ætlað lykilhlutverk í uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu en eðli máls samkvæmt hefur það ekki lokið samningsgerð um forgangsröðun og fjármögnun. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa haft ólíka sýn á lausnir í samgöngumálum en félaginu er ætlað að ná sátt um lausnir og gera samninga af ýmsu tagi, svo sem við Vegagerðina um útboð framkvæmda og um þróun á landi ríkisins við Keldur til að hámarka virði þess.“
Félagið á sem sagt að verða einhvers konar sáttamiðlari milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu til þess að hægt sé að halda áfram með verkefnið eða það sé í föstum farvegi. Mér finnst svolítið sérstakt að sveitarfélögin skuli ekki hafa getað komið sér saman um þessa hluti og þurfi einhvern sérstakan sáttamiðlara til þess. Síðan er fjallað um aðkomu Alþingis og eftirlit fjárlaganefndar. Þar segir, með leyfi forseta:
„Með því að færa samgönguframkvæmdir inn í opinbert hlutafélag hefur Alþingi ekki sömu aðkomu að málum eins og um væri að ræða hefðbundnar framkvæmdir í umsjón Vegagerðarinnar og fjármagnaðar á samgönguáætlun.“
Þetta er hárrétt og það er að nokkru leyti áhyggjuefni, þegar um svona mikla fjármuni og skuldbindingar er að ræða, að búa til þessa fjarlægð frá Alþingi. Það hefur ekki endilega verið góð reynsla af opinberum hlutafélögum, hvort sem þar er um að ræða RÚV eða önnur. Ríkið ber í rauninni ábyrgðina og kostnaðinn en hefur litla sem enga yfirsýn eða yfirstjórn á þessum félögum.
Fleira er inni í þessum liðum um aðkomu Alþingis og eftirlit fjárlaganefndar sem ég hyggst fjalla um á eftir og þar er m.a. fjallað um hvernig tryggja eigi aðkomu þingsins að málinu í gegnum fjárlög. Það þarf að skýra betur en hér er gert að mínu viti. Svo er hér talað um gjaldtökuna og 60 milljarðana og ég kem inn á það síðar. Ég óska eftir að verða settur aftur á mælendaskrá.