150. löggjafarþing — 126. fundur,  24. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[15:54]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Ég ætlaði að fara í gegnum nefndarálit minni hluta fjárlaganefndar en rakst í millitíðinni á frétt á vef RÚV sem fjallar um að aðeins þeir tekjuhærri geti keypt rafbíla. Framkvæmdastjóri Landverndar segir þetta og mér finnst það býsna merkileg niðurstaða vegna þess að framkvæmdastjóranum finnst ganga of hægt í orkuskiptum og leggur til að hækkaðar verði álögur á þá sem keyra á bensín- og dísilbílum. Ekki sé nóg að ívilna þeim sem keyra á rafbílum heldur segir í fréttinni, með leyfi forseta:

„Við þurfum að tryggja að við séum virkilega að draga úr innflutningi á bensín- og dísilbílum sem ekki er gert ráð fyrir að verði gert á þessu tímabili og við þurfum líka að tryggja gjaldtöku, sem sagt hærri skatta á bensín og dísil.“

Mér finnst hræðilegt að þeir sem eru efnameiri geti keypt sér rafbíla og hinir sem eru þá kallaðir efnaminni eigi að ferðast um í borgarlínu. Verið er að mynda gjá á milli íbúa. Ég spyr: Á kostnað hvers? Þeir sem aka um á rafbílum, sem ég er svo sem ekkert á móti, fá nefnilega frí bílastæði. Þeir þurfa hugsanlega ekki að borga sig í gegnum götutollahliðin þegar þau koma upp. Aftur á móti greiða þeir sem aka um á bensín- og dísilbílum fyrir bílastæði. Þeir þurfa örugglega að greiða gjöldin í tollahliðunum. Hinir tekjuhærri hafa efni á að kaupa rafbíla á meðan þeir tekjulægri eru þvingaðir til að nota almenningssamgöngur. Það er staðreynd málsins.

Annað sem mig langar aðeins að minnast á er að um daginn vorum við að fjalla hér um uppsetningu á hleðslustöðvum við fjöleignarhús. Ég setti mig mjög upp á móti þeirri aðferðafræði sem þar var kynnt til sögunnar vegna þess að þar getur þá, ef við leggjum þetta saman, einn tekjuhærri íbúi í blokk farið fram á að aðrir í blokkinni borgi fyrir hann uppsetningu á hleðslubúnaði. Það getur verið kostnaður upp á eina og hálfa milljón. Ég benti á að leiðin sem farin er í Reykjavík, það er ekki oft sem maður getur talað vel um Reykjavík, er sú að þar er sjóður sem fólk getur sótt í um styrk til að setja upp hleðslustöðvar við fjöleignarhús og það er ásókn í þann sjóð. Mér finnst alveg fáránlegt að ríkið fari ekki þá leið vegna þess að það er ríkið sem sér til þess að við förum í gegnum orkuskipti. Það á ekki að setja það á íbúa sem ekki aka á rafbílum því að margir sem eru í blokkum eru að kaupa sína fyrstu íbúð, eru oft að stofna sína fyrstu fjölskyldu og eru jafnvel að greiða af námslánum og svo mætti lengi telja. Það er varla ásættanlegt ef það er rétt sem framkvæmdastjóri Landverndar segir að aðeins þeir efnameiri hafi efni á því að eiga rafbíl. Það er einhvern veginn allt svo bjagað í þessari framsetningu og í þessari hugmyndafræði að maður á bara ekki orð. Nú erum við að fara að banna innflutning á bensín- og dísilbílum 2030 og það eru ekki mörg ár í það. Hvernig ætla menn að fara að þessu? Á t.d. að skattleggja fólk út úr höfuðborginni? Hvað með þá sem þurfa að sækja þjónustu hingað, sem allt miðar að í þessari blessuðu samgönguáætlun? Við ræddum það hér um daginn og það kom ítrekað í ljós að miðlæg þjónusta sem á að þjónusta allt landið verður í höfuðborginni. Mér er spurn.