heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Frú forseti. Íslensk framkvæmdasaga geymir því miður mjög mikið af dæmum um framkvæmdir þar sem kostnaðaráætlanir á byggingartíma hafa ekki staðist. Í nærtækum nútíma mætti benda á fyrstu Flugstöð Leifs Eiríkssonar frá því 1986. Það mætti benda á Perluna í Öskjuhlíð. Það mætti benda á Ráðhús Reykjavíkur. Allt eru þetta dæmi um framkvæmdir sem fóru langt fram úr upphaflegri kostnaðaráætlun.
Það eru margir, bæði hér inni og utan húss, sem hafa velt því fyrir sér hvers vegna við Miðflokksmenn erum að fara orðum um það mál sem hér liggur fyrir. Þetta er ein af ástæðunum, frú forseti. Við höfum áhyggjur af því að ríkissjóður sé með skuldbindingu sinni í þessu fyrirhugaða almenningshlutafélagi eða ohf. að skuldbinda ríkissjóð enn frekar en um þá 50 milljarða sem meiri hlutinn er reiðubúinn að leggja í þetta púkk. Eins og áður hefur fram komið er mjög merkilegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli vera jafn reiðubúinn og í raun ber vitni að fjármagna kosningaloforð Dags B. Eggertssonar og félaga í borgarstjórn Reykjavíkur.
Og af því að ég sagði kostnaðaráætlanir, frú forseti, þá er nærtækt dæmi braggi nokkur í Nauthólsvík, sem upphaflega átti að kosta eitthvert smotterí en endaði í hálfum milljarði og öll sagan er ekki sögð enn. Það ríður því á að vanda til áætlana. Það kom fram að aukakostnaður vegna borgarlínu yrði 2 milljarðar, þá erum við að tala um rekstur á ári. Yfirmaður samgönguskrifstofu Reykjavíkurborgar, þeir eru að vísu örugglega fleiri en einn, en það var haft eftir einum þeirra í gær — væntanlega út af þeim ummælum sem hér hafa fallið í umræðunni að ekki sé traustvekjandi að ekki sé til rekstraráætlun — þessi ágæti maður sagði að ekki væri þörf á því að rekstraráætlun lægi fyrir núna.
Þá hlýtur maður að spyrja: Ef það er ekki tímabært að rekstraráætlanir fyrir borgarlínu liggi fyrir núna þegar Alþingi Íslendinga er að fara að skuldbinda ríkissjóð í fyrirtæki til 15 ára upp á 50 milljarða, fyrirtæki sem við vitum ekki enn hvernig á að líta út og fyrirbæri sem við vitum ekki hvernig á að líta út, þá veit ég ekki hvenær það ætti að vera. Ættu þær kannski að liggja fyrir bara núna í ágúst ef þetta frumvarp verður samþykkt að lokum? Ættu þær kannski að liggja fyrir þegar Alþingi er búið að kvitta upp á það að ríkissjóður opni æð sem leki inn í þetta verkefni?
Nei, frú forseti, það er fyllilega tímabært og ekki bara tímabært heldur sjálfsagt og eðlilegt. Það er eðlileg krafa og hún er hógvær og hún er rétt, að það liggi fyrir rekstraráætlanir um þetta fyrirbæri sem borgarlína er.
Ég verð að segja að sitjandi forseti er, fyrir utan það að vera helsti sérfræðingur Sjálfstæðisflokksins í samgöngumálum, sérstaklega hvað varðar höfuðborgarsvæðið, kannski eini stjórnmálamaðurinn sem hefur sagt þeim sem hér stendur hvað borgarlína sé. Ég er búinn að spyrja nokkuð marga að því: Hvað er borgarlína? Hv. þingmaður og nú sitjandi forseti sagði að þetta væru fyrirbæri sem myndu fara um á rauðum dreglum í Reykjavík og flýta mjög fyrir almenningssamgöngum. Mér þótti það mjög athyglisvert og þetta er kannski, eins og ég segi, í fyrsta sem ég fékk að heyra um hvað raunverulega í þessu fælist.
Ég fór að skoða nýjustu glærusýningu Reykjavíkurborgar um málið og nota bene, frú forseti, mér skilst að nú eigi að kynna sæti sem eiga að vera í biðstöðvum borgarlínunnar. Ég bíð mjög spenntur og ég er viss um að borgarbúar gera það líka. En ég hefði, frú forseti, í stað þess að fá upplýsingar um hvernig sætin eiga að líta út á biðstöðvunum, verið frekar til í eina rekstraráætlun. Mér hefði þótt það meira við hæfi. En það er kannski bara ég. En frú forseti sem nú situr benti sem sagt undirrituðum á það að borgarlínan væri þessi ofurvagn sem færi um á rauðum dreglum um höfuðborgarsvæðið og flýtti för manna.
Þetta varð til þess að ég fór að skoða næstnýjustu skrautsýningunni frá Ráðhúsinu þar sem fyrsti áfangi borgarlínunnar var mjög áberandi. Hann er frá Höfða í Árbæ og gengur vestur fyrir Reykjavík í nokkrum sveig yfir brú sem er óbyggð yfir Fossvog, átti upphaflega að vera fyrir gangandi og reiðhjól, fer þaðan inn í tvær 60 ára gamlar húsagötur áleiðis í Smáralind í Kópavogi. Þetta eru 13 km og á þessari 13 km leið, eftir því sem yfirlitsmynd borgarinnar sýnir, eru stoppistöðvar eða viðkomustaðir í kringum 25. Það hlýtur að leiða hugann að því hversu fljótur maður sem er upp á Höfða og þarf að fara í Smáralind er að fara þessa leið, þá 13 km, og stoppa 20–25 sinnum á leiðinni. Fyrir utan að það er vissulega svo að þessi fararskjóti, manni sýnist eins og þetta séu eins og tveir strætisvagnar festir saman, mun fara um rauðan dregil sem verður væntanlega dreginn í gegnum athafnasvæði á Höfðanum, Breiðhöfða, Bíldshöfða og þar í grennd og mun hrekja þá atvinnustarfsemi sem þar er væntanlega upp á Esjumela eða út úr borginni eins og mjög er til siðs núna á tímum þess meiri hluta sem hér ríkir.
Þaðan mun línan fara um Voga, gömlu Suðurlandsbrautina, og ég velti því fyrir mér af því að gamla Suðurlandsbrautin er einn á móti einum lengst af. Þá kemst ekkert annað fyrir á þeim kafla hennar en þessi borgarlína, önnur umferð verður annaðhvort bönnuð eða fer eitthvert annað. Borgarlínan mun þá væntanlega taka aðra akrein Suðurlandsbrautar og Laugavegar frá Skeifunni eða þar um bil og niður að Hverfisgötu þannig að þá verður Suðurlandsbraut–Laugavegur einnar akreinar braut fyrir aðra en borgarlínu. Að vísu er líka búið að þrengja að þeirri götu, sem er mjög ágætt svo sem, fyrir hjólandi umferð. Það er mjög gott því að þar eru hjólreiðamenn öruggir og ekki verið að keyra þá niður og þeir komast sinna ferða mjög fljótt. Þarna fer þá væntanlega önnur akreinin á þessum bletti undir borgarlínu.
En, frú forseti, þá komum við að enn nýjum stað sem er Hverfisgatan. Hún er það mjó gata að þar eru strætisvagnar í erfiðleikum í dag að mætast. Ég fæ ekki séð með nokkru móti, það er að vísu hægt að ryðja í burtu bílastæðum beggja vegna götunnar, en að öðru leyti sé ég ekki pláss þarna fyrir rauðan dregil undir borgarlínu.
Það sem er kannski alvarlegra í þessu er það, frú forseti, að það er jú búið að byggja Hverfisgötuna upp mjög skemmtilega fyrir íbúðir. Íbúðirnar eru yfirleitt frekar litlar og tiltölulega ódýrar miðað við staðsetningu sem þýðir að ungt fólk, margt með börn, hefur flust í þær. Nú spyr ég frú forseta: Er það barnvænt að búa við götu þar sem 18 metra 40–50 tonna strætisvagnar fara um á sjö mínútna fresti? Mér finnst það ekki. Það er kannski bara ég.
Ég þarf að lýsa þessari leið betur í næstu ræðu minni því að ég sé að ræðutími minn er búinn og bið því hæstv. forseta að setja mig á mælendaskrá aftur.