150. löggjafarþing — 126. fundur,  24. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[16:20]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Birgir Þórarinsson) (M):

Frú forseti. Ég hef verið að fara aðeins yfir einstakar greinar frumvarpsins sem við ræðum hér, sem er frumvarp til laga um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem standa að því hlutafélagi eru ríkissjóður, sem er 75% eigandi, og síðan sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. Garðabær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Kópavogsbær, Mosfellsbær og Seltjarnarnesbær. Ég var, þegar ég lauk máli mínu að nefna 7. gr. frumvarpsins þar sem fjallað er um yfirtöku og þróun lands í eigu ríkisins, eins og segir í frumvarpinu, með leyfi forseta:

„Félagið skal með sérstökum samningi við ráðherra taka við landi í eigu ríkisins ásamt þeim réttindum og skyldum sem því tengjast og telst það hluti af hlutafjárframlagi ríkisins. Í samningnum skal m.a. ákvarða afmörkun lands og skilyrði afhendingar þess til félagsins.“

Þá spyr maður sig: Hvað er til staðar á þessu landi, á Keldnalandi? Þar er nú reyndar mjög verðmætt og fallegt land, grænt svæði í Reykjavíkurborg og er synd að hluti þess verði lagður undir borgarlínu verði hún að veruleika. Nú eru þarna fyrir á þessu landi mannvirki og rekstur, þ.e. Keldur sem er mikilvægt rannsóknarsetur, og það kostar töluverða peninga að flytja þá starfsemi. Í fyrsta lagi þarf þá að finna nýjan stað fyrir þá starfsemi. Verður það innan höfuðborgarsvæðisins? Það fylgir því verulegur kostnaður að fá land undir svo mikla starfsemi. Það þarf að reisa nýjar byggingar undir starfsemina og síðan þarf að flytja hana. Allt kostar það peninga og það er líka kostnaðarsamt þegar reksturinn þarf að leggjast niður eða er alla vega í biðstöðu meðan flutt er.

Það er ekkert talað um það hér, frú forseti, hver eigi að standa straum af þessum kostnaði. Og ég verð að segja að mér finnst það verulegur galli á þessu samkomulagi að það skuli ekki vera sagt hér. Hér er bara sagt, með leyfi forseta:

„Allur ábati af þróun og sölu landsins skal renna óskertur til verkefnisins um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu. Félagið skal annast þróun landsins í samvinnu við skipulagsyfirvöld með það að markmiði að hámarka virði landsins og uppbyggingarmöguleika þess eins og kostur er.“

Hvergi er fjallað um það hver eigi að standa straum af þeim kostnaði sem fylgir því að flytja starfsemina sem er nú þegar á staðnum, byggja ný mannvirki og kaupa eða leigja lóð. Ætlar Reykjavíkurborg að útvega ríkinu lóð undir þessa starfsemi annars staðar og rukka þá lóðaleigu af ríkinu eða selja því lóðina fyrir milljarð, eða tvo eða þrjá? Maður veit ekkert um það. Á síðan ríkið að standa straum af þessu sjálft? Nei. Ég tel fullkomlega eðlilegt, frú forseti, að meðeigendur ríkisins í þessu hlutafélagi beri þennan kostnað. Ég hefði viljað sjá hér breytingarákvæði við þessa grein þess efnis að kostnaður ríkisins við að flytja starfsemi stofnana ríkisins af landinu og koma henni fyrir á öðrum stað greiðist af öðrum eigendum í hlutfalli við eignarhlutdeild þeirra.

Þetta verður að liggja fyrir, frú forseti, það er ekkert sanngjarnt að ríkissjóður þurfi að standa straum af þessum kostnaði. Ég er mjög hissa á að ekki skuli vera neitt um þetta í frumvarpinu. Ég finn hvergi staf um þetta í greinargerðinni og hvað þá í ákvæðum frumvarpsins. Að mínum dómi eru það bara engan veginn nógu góð vinnubrögð. Þessu þarf að taka á og þetta er einn af þeim ágöllum við þetta samkomulag sem ég hef bent á. Ég hef bent á fleiri atriði, í 6. gr. m.a., sem ég fór yfir áðan.

Ég sé, frú forseti, að tíminn er liðinn og ætla að halda áfram í næstu ræðu að fjalla um (Forseti hringir.) einstakar greinar frumvarpsins eins og það liggur fyrir hér. Ég bið vinsamlegast um að verða settur aftur á mælendaskrá.