150. löggjafarþing — 126. fundur,  24. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[16:26]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Mér varð tíðrætt um mikilvægi Sundabrautar áðan, og alla tíð, sem ég held að hafi verið komin inn á borð funda í Reykjavíkurborg fyrir 1980, 1990, eitthvað svoleiðis, en enn hefur ekkert skeð. Hér er skýrsla innanríkisráðuneytisins, sem er að vísu síðan 2015, sem ég var að lesa og langar að vitna aðeins í þann texta, með leyfi forseta:

„Með lagningu Sundabrautar mun þjóðvegur frá Kvosinni í miðbæ Reykjavíkur upp á Kjalarnes, miðað við að nú sé farið um Sæbraut og Vesturlandsveg, styttast um 7,5–9 km (Línuhönnun, 2006).“ — Þetta er samkvæmt útreikningum frá Línuhönnun frá árinu 2006 þegar þessi leið um Sundabraut var væntanlega komin á framkvæmdastig en síðan skeði ekki neitt vegna ýmissa atriða. — „Því er fyrirséð að bættar vegasamgöngur milli Reykjavíkur og Grafarvogs annars vegar og Reykjavíkur og Kjalarness hins vegar muni hafa ábata í för með sér fyrir höfuðborgarbúa og bæta tengingu við Vestur- og Norðurland. Þá mun Sundabraut draga úr umferð í gegnum Mosfellsbæ og draga þannig úr fjárfestinga- og viðhaldsþörf núverandi Vesturlandsvegar frá gatnamótum Suðurlandsvegar í suðri og að gatnamótum Sundabrautar á Kjalarnes í norðri.“

Á blaðsíðu 37 í sömu skýrslu segir, með leyfi forseta:

„Séu einstaka svæði skoðuð má sjá að brautin hefur mest áhrif á Miklubraut, Vesturlandsveg og í Grafarvogi.

Ef niðurstöður umferðarlíkans eru rýndar enn frekar benda niðurstöður þess til að heildarferðatími einstaklinga í bifreiðum á höfuðborgarsvæðinu minnki um 1–1,4% á ári með tilkomu brautarinnar, allt eftir því hvort markmið um breytingu ferðavenja náist að fullu. Þar með er þó ekki öll sagan sögð þar sem að brautin hefur mest áhrif á umferðartafir en tími við umferðartafir mun skv. umferðarlíkaninu minnka um 9–10% á ári með tilkomu brautarinnar, á höfuðborgarsvæðinu öllu. Slíkt leiðir af sér aukið ferðatímaöryggi og betri ferðaupplifun.“ — Ekki er það nú síðra. — „Athugum þó að það á við meðalferðatíma yfir daginn. Tími við umferðartafir á háannatíma mun líklega minnka mun meir en sem nemur 9–10%, eðli málsins samkvæmt.“

Þrátt fyrir lágar umferðartölur á öðrum áfanga Sundabrautar benda niðurstöður skýrslunnar til þess að Sundabraut sé fýsileg framkvæmd. Þetta er bara úr þessari skýrslu frá innanríkisráðuneytinu frá árinu 2015 og þessar staðreyndir liggja algerlega fyrir, en einhvern veginn hefur ekkert skeð. Og það verður að segjast eins og er að það er eins og Reykjavíkurborg hafi lagst þvert í götu þess að greiða fyrir þessari framkvæmd á allan hátt síðustu ár og er það alveg óskiljanlegt því að öll rök benda til þess að fara þessa leið, hvernig sem hún verður farin, það er algerlega nauðsynlegt. Ég hef áður talað um t.d. bara styttingu leiðarinnar á nærsvæðin eins og Akranes og Borgarnes sem myndi verða til frekari uppbyggingar á þeim stöðum fyrir fólk sem vill sækja vinnu hingað suður því að nóg er nú farið að þrengjast að hér á svæðinu.

Ég sé að tími minn er búinn þannig að ég verð að biðja forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá.