heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Frú forseti. Ég fór aðeins í gegnum nefndarálit meiri hlutans í ræðu áðan og ætla að líta áfram yfir það. Ég vil þó segja, frú forseti, að ég sakna þess að stjórnarliðar komi hér og reyni að selja okkur hugmyndina að þessu félagi. Sérstaklega sakna ég þess að þingmenn Sjálfstæðisflokksins komi og segi okkur hversu frábært þetta félag er, hversu stórkostlegt það er að geta búið til slíkt félag, rammað inn fjármögnun og farið í samvinnuframkvæmdir með borgarstjórnarmeirihlutanum því að ekki virðist borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins sérstaklega hrifinn af þessu, eins og sjá má af grein oddvita flokksins í Morgunblaðinu fyrir skömmu. Sjálfstæðismenn á Alþingi hafa hins vegar tekið að sér að sjá til þess að þetta mál sem snýr að borgarlínu fari í gegnum þingið.
Það er nokkur undrun í huga mér yfir því hvernig haldið hefur verið á málinu vegna þess að alls ekki er ljóst hver endanlegur kostnaður og annað er. Tilfinningin er sú að menn hafi verið teymdir af stað í einhverja ferð sem þeir ráða ekkert við. Þeir ráða ekki hvaða leið er valin, þeir ráða ekki hvert er farið og því síður ráða þeir hvar þeir enda. Það verður að segjast að maður hefði ekki trúað því fyrir ekki allt of löngu síðan að Sjálfstæðisflokkurinn myndi kokgleypa hugmyndir um þessa borgarlínu, nánast sama hvað hún kostaði.
Frú forseti. Í sjálfu sér er ekkert haldbært í þessu frumvarpi eða í nefndarálitinu sem girðir fyrir að verkefnið hafi óhindraðan aðgang að ríkisfé, svo að við orðum það bara þannig. Verkefnið mun fara fram úr áætlun og það er ekki skýrt hver á að borga. Mér finnst ekki hægt að fara í verkefni sem þetta, með enga lokasýn á lokatölur, og ætla ríkinu að borga það. Það kemur ekki til greina, kemur bara alls ekki til greina. Mér finnst full ástæða til að velta því fyrir sér af hverju menn vilji ekki girða fyrir það með almennilegum hætti. Það er alla vega mjög óábyrgt, myndi ég segja, og í rauninni nýtt að þingmenn Sjálfstæðisflokksins skuli fara þannig með ríkisfé, skilja baukinn eftir opinn fyrir aðra að krafsa í aurana sem í honum eru.
Ég held líka, frú forseti, að skattgreiðendur eigi betra skilið, skattgreiðendur sem hafa beðið eftir lækkun skatta í mörg, mörg ár. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lofað lækkun skatta ár eftir ár, bæði á einstaklinga og fyrirtæki. En þau horfa ekki fram á að slík loforð verði efnd á næstu árum ef við horfum á ástand ríkissjóðs í dag og þær skuldbindingar sem í ofanálag er verið að taka að sér með þessu verkefni. Í ljósi þess að nú er stutt í kosningar er mjög áhugavert að Sjálfstæðisflokkurinn fari með þetta verkefni sem eitt af sínum helstu afrekum inn í kosningabaráttuna. Allir vita að hann getur ekki enn og aftur lofað skattalækkun, tekjuaukningu í vasa almennings, enda virðist flokkurinn löngu horfinn frá þeim skoðunum sínum. Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn andlit þess sem þenur út ríkisbáknið. Í öðrum málum sem á að afgreiða núna sjáum við mikla fjölgun starfa á vegum ríkisins sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að kyngja. Svo skilur hann baukinn eftir opinn, að því er virðist, í verkefninu sem snýr að borgarlínu
Það er hreint með ólíkindum, frú forseti, að horfa upp á að ekki sé girt betur fyrir útgjöld ríkissjóðs. Ég velti fyrir mér hvernig stendur á því. Sér í lagi velti ég fyrir mér hvers vegna það kemur enginn upp og reynir að rökstyðja og tala fyrir málinu. Ég auglýsi sérstaklega eftir að hv. þm. Sigríði Á. Andersen, 1. þm. Reykvíkinga, komi hingað upp og segi okkur hvað er svona frábært við þetta félag sem flokkur hennar ætlar að láta stofna hér.