heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Frú forseti. Það er von að hv. síðasti ræðumaður, Karl Gauti Hjaltason, skuli furða sig á þessu máli. Það á að moka milljarðatugum í verkefni sem er óskilgreint, sem enginn veit hvað er. Ýmsir telja sig vita hvað það er og það eru margar skilgreiningar en þetta sé hins vegar ófullburða verkefni og a.m.k. einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins nefnir þetta aldrei annað en svokallaða borgarlínu og talar um þetta sem fyrirbæri. Svo til viðbótar á að skattleggja borgarbúa eða vegfarendur hér upp á 60 milljarða og fá hvað í staðinn? Meiri umferðarteppur af því að það á að fækka akreinum fyrir fjölskyldubílinn? Það er ekkert skrýtið að menn furði sig á þessu. Það er eiginlega með ólíkindum að flokkur með jafn virðulega sögu og Sjálfstæðisflokkurinn skuli ætla sér að standa að neyslustýringu undir þessum formerkjum, ýta fólki í borgarlínuna.
Frú forseti. Hvernig er þetta mál hugsað? Ég er ekki að beina spurningu til forseta heldur almennt. Hvaða áhrif mun þessi borgarlína hafa á greiða för til að mynda lögreglu og slökkviliðs og sjúkraflutninga? Maður spyr sig að því. Það er náttúrlega fjöldi fólks sem vinnur í þágu aldraðra, hjúkrunarfræðingar sem fara á milli heimila, sjúkraþjálfarar sem fara á milli heimila aldraðra, hvers kyns kunnáttufólk, fólk með matarsendingar, fólk sem sinnir félagslegri þjónustu — á það að fara með þessari borgarlínu?
Frú forseti. Í þessu máli liggur fyrir umsögn sem ástæða er til að vekja máls á. Það er umsögn frá Skipulagsstofnun sem fjallar um annað atriði en það sem ég var að tala um hérna. En þar er gerð alvarleg athugasemd við ákvæði varðandi tilgang og markmið félagsins. Það er rakið að í inngangi greinargerðar með frumvarpinu sé vísað til samgöngusáttmála frá árinu 2019 sem hafi að markmiði að stuðla að bættum lífsgæðum á höfuðborgarsvæðinu með uppbyggingu skilvirkra, hagkvæmra, öruggra og umhverfisvænna samgönguinnviða. Það er rakið að í markmiðsákvæði frumvarpsins sé hins vegar ekki vikið að framangreindu markmiði um að stuðla að bættum lífsgæðum á höfuðborgarsvæðinu. Í framhaldi af þessu segir, með leyfi forseta:
„Skipulagsstofnun telur um að ræða grundvallarforsendu fyrir efni frumvarpsins sem ástæða sé til að komi fram í markmiðum frumvarpsins.“
Það segir sömuleiðis í þessari umsögn að í markmiðsákvæði frumvarpsins segi að stuðla skuli að jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta en Skipulagsstofnun gerir athugasemd við þetta. Hún segist telja þetta orðalag ekki endurspegla það sem rætt er um þessi efni í greinargerð með frumvarpinu. Þar er vísað til greiningar sem unnar hafa verið við gerð svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins sem sýnt hafa fram á þörf á að breyta ferðamátum á höfuðborgarsvæðinu og auka hlut gangandi, hjólandi og þeirra sem nýta almenningssamgöngur til að draga úr töfum í umferð og auka lífsgæði íbúa.
Þetta, frú forseti, þarf auðvitað að gerast með frjálsum hætti. Fólk þarf að velja þetta frjálst. Það er t.d. fullt af fólki sem er hér á rafknúnum hlaupahjólum, þau hafa rutt sér til rúms og fólk hefur bara tekið ákvörðun um það sjálft. Það er þannig sem við viljum að fólkið fái að lifa í landinu, það fái að taka sínar ákvarðanir sjálft. Ef það vill ferðast á hlaupahjólum þá gerir það það. Ef það vill ganga þá gerir það það. Ef það vill aka um í fjölskyldubíl eða vill fara í strætó þá gerir það það. Þetta er bara frjálst land. Stjórnvöld eiga ekki að vera með einhverjar þvinganir með ofurskattlagningu eins og hér eru áform um.