150. löggjafarþing — 126. fundur,  24. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[16:47]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Ég ætla að glugga aðeins í nefndarálit minni hluta fjárlaganefndar, sem ég ætlaði að gera áðan en var í millitíðinni bent á frétt á RÚV sem sló mig dálítið. Minni hluti fjárlaganefndar tekur undir ýmislegt í þessu máli þó að margt annað sé ekki hægt að taka undir. Til dæmis tekur minni hlutinn undir uppbyggingu samgöngumannvirkja og sérstaklega er fagnaðarefni að mér sýnist að nútímavæða eigi ljósastýringarkerfið. Við höfum rætt það hér að byrja mætti á því sem fyrst. Síðan eru nefndar framkvæmdir á stofnbrautum og uppbygging á hjólastígum og annarra vistvænna tegunda samgöngumáta. Þetta rímar alveg við mína hugsun. Mér finnst þetta hljóma mjög vel. En auðvitað kemur hér fram og er öllum er ljóst að minni hlutinn, þ.e. hv. þm. Birgir Þórarinsson, getur ekki fallist á áform um uppbyggingu borgarlínu.

Það er mikil óvissa uppi um hvernig borgarlínan á að vera. Við höfum ítrekað bent á að það liggi engin rekstraráætlun fyrir. Þó er búið að ákveða að hægt sé að hanna og koma á fót biðstöðvum o.s.frv. Það er margt í þessu sem vekur upp frekari spurningar.

Í nefndarálitinu er rætt um að stofna á hluthafafélag og það er það sem við gagnrýnum kannski hvað helst. Það sé ekki alveg rétt að það sé hluthafafélag um þessa framkvæmd, sérstaklega vegna þess að ekki er búið að setja fram með skýrum hætti hvað felst í þessu félagi ef t.d. koma upp ágreiningsmál. Það er auðvitað stóra málið, að hafa hlutina skýrt fyrir augunum og vita hvernig á að bregðast við þegar eitthvað kemur upp á. Það viljum við öll svo að það fari ekki allt í hnút.

Síðan er tekið til í þessu minnihlutaáliti að það verði skýrari línur hvað varðar stjórnskipulega stöðu stýrihópsins sem er settur á laggirnar líka. Það er allt á sömu bókina lært. Það er einhvern veginn vaðið áfram án þess að hlutirnir séu nægjanlega skýrir og settir fram þannig að fólk viti hvað það er að samþykkja, vilji það taka þátt í því að þessi borgarlína verði að veruleika.

Það er auðvitað fáránlegt að ræða yfirleitt þessi umferðargjöld, sérstaklega ef þau eru þannig eins og ég fór yfir í fyrri ræðu, að þeir sem aka um á rafmagnsbílum verði undanþegnir slíkum gjöldum til að skapa hvata. Það þýðir bara eitt: Þeir sem ekki eru á rafmagnsbílum þurfa að greiða fyrir hina sem eru þeir efnameiri eins og er búið að segja hér. Það var sérstaklega framkvæmdastjóri Landverndar sem benti á að það væri alveg ljóst að í nýuppfærðri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum væru það einmitt þeir efnameiri sem hefðu efni á því að kaupa sér rafmagnsbíl.

Það má líka velta því upp að auðvitað þarf að gera átak í að setja upp hleðslustöðvar hringinn í kringum landið. Við vitum að það eru komnir nýir bílar á markaðinn og það eru sérstakar hleðslustöðvar sem fylgja ákveðnu bílamerki og það gefur augaleið að við getum þá séð á eftir þeim efnameiri fara hringinn í kringum landið meðan hinir fá ekki einu sinni ferðagjöf til að nota á tjaldstæðum. Ég ítreka bara að það er verið að búa til óþægilega gjá þarna á milli og furðulegt að fólk ætli virkilega að halda áfram með þessa hugmynd.