150. löggjafarþing — 126. fundur,  24. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[16:53]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Birgir Þórarinsson) (M):

Frú forseti. Ég ætla að halda áfram umfjöllun minni um einstakar greinar frumvarpsins sem við ræðum hér, frumvarp til laga um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er stórt og mikið mál og verði það samþykkt er verið að skuldbinda ríkissjóð fyrir tugi milljarða króna fram í tímann. Þess vegna er algerlega nauðsynlegt að fara vandlega yfir málið allt saman. Það erum við í Miðflokknum að gera hér og höfum gert, ekki síst í ljósi þess að við erum jú öll ríkissjóður, eins og hv. þm. Willum Þór Þórsson nefndi í eldhúsdagsumræðum í gær. Það er réttilega mælt hjá hv. þingmanni og rétt að halda því til haga vegna þess að hér er verið að skuldbinda ríkissjóð fyrir verulega upphæð á sama tíma og staða ríkisfjármála er ekki góð. Það stefnir í verulegan halla á ríkissjóði, jafnvel allt að rúmlega 300 milljarða kr. vegna veirufaraldursins.

Það er umhugsunarefni, frú forseti, að á þessum tímamótum — og ég tala nú ekki um þegar sveitarfélögin sem að samkomulaginu standa hafa óskað eftir ríkisaðstoð, óendurkræfum styrkjum, til að mæta áföllum sem sveitarsjóðir og borgarsjóður hafa orðið fyrir vegna kórónuveirufaraldursins — sé farið í gríðarlegar fjárhagslegar skuldbindingar vegna þessa verkefnis. Staða efnahagsmála í landinu vegna veirufaraldursins, sem ég nefndi reyndar í umræðu um samgönguáætlun, ætti ein og sér að gefa tilefni til að menn a.m.k. frestuðu málinu og færu þá yfir það síðar hvort skynsamlegt væri að ráðast í þær miklu skuldbindingar sem liggja að baki því.

Ég fór hér síðast í gegnum 7. gr. frumvarpsins, um yfirtöku og þróun lands í eigu ríkisins, og ætla að ljúka því. Ég lagði áherslu á að töluverður kostnaður fylgir því að flytja starfsemi og mannvirki sem þegar eru til staðar á Keldnalandinu og tilraunastöðinni að Keldum. Ekkert er rætt um það í frumvarpinu hver eigi að standa straum af kostnaði við að flytja starfsemina á nýjan stað. Verður leigð lóð eða keyptar lóðir, t.d. af Reykjavíkurborg? Flutningurinn sjálfur er síðan kostnaðarsamur og starfsemin öll. Svo þarf náttúrlega að fjarlæga mannvirkin. Það kostar einnig töluverða peninga. Það er ekkert um það í þessu samkomulagi. Það er náttúrlega verulegur galli á því. Þess vegna hefði ég viljað sjá ákvæði þess efnis að kostnaður ríkisins við að flytja starfsemi stofnana ríkisins af landinu og koma henni fyrir á öðrum stað greiðist af öðrum eigendum í hlutfalli við eignarhlutdeild þeirra. Það er bara fullkomlega eðlilegt að þeir sem eiga landið á móti ríkinu taki þátt í þeim kostnaði. Það er hvergi kveðið á um það hér, hvergi. Maður veltir fyrir sér hvort sveitarfélögin hafi bara ætlast til þess að ríkissjóður myndi einnig standa straum af þeim kostnaði. Þess vegna er nauðsynlegt að taka á þessu, frú forseti, í 7. gr.

Í 8. gr. er fjallað um heimild til lántöku og fleira. Þar segir, með leyfi forseta:

„Félaginu er heimilt að taka lán umfram það sem fjármagnað er með framlögum til félagsins, rúmist það innan heildarfjárfestingar og sé metið hagkvæmt fyrir framgang uppbyggingar á samgönguinnviðum og annarra verkefna félagsins. Lántaka er háð því skilyrði að ríkissjóður veiti félaginu lán eða veiti ríkisábyrgð verði lán tekið frá öðrum aðila.

Félaginu er heimilt að stofna dótturfélög til að annast afmarkaða þætti af verkefnum félagsins, í samræmi við samþykktir þess og lögum þessum.

Félaginu er heimilt að gera hvers konar samninga við aðra aðila til að ná tilgangi sínum á sem hagkvæmastan hátt.“

Þetta þarf að fara nákvæmlega yfir og ég ætla að gera það í næstu ræðu minni þar sem tíminn er á þrotum, frú forseti. Ég bið (Forseti hringir.) forseta vinsamlega að setja mig aftur á mælendaskrá.